Ljósberinn - 01.06.1952, Blaðsíða 15

Ljósberinn - 01.06.1952, Blaðsíða 15
LJOSBERINN 63 SUMARBÚÐIR Vatnaskógur. Flestir unglingar á íslandi kannast nú orð- ið við Vatnaskóg. Þar hefur K.F.U.M. rekið sumarstarf í nærri 30 ár og þeir sem þar hafa Nú vill Ljósberinn benda ykkur á tvo ágæta sumardvalarstaði, annan fyrir drengi og hinn fyrir stúlkur. Þar er hægt að dvelja lengri eða skemmri tíma eftir atvikum. Eru það Vatnaskógur og Vindáshlíð. Starfið í Vat.na- skógi er rekið fyrir drengi af K.F.U.M. í Rvík, en starfið í Vindáshlíð er rekið fyrir stúlkur af K.F.U.K. Á báðum þessum stöðum er tekið á móti dvalargestum hvort sem þeir eru meðlimir K.F.U.M. og K. eða ekki og hvort sem þeir eru úr Reykjavík eða annars staðar að af landinu. Vindáshlíð. Stúlkur úr K.F.U.K. í Reykjavík hafa ný- lega reist mjög glæsilegan skála í Vindás- hlíð í Kjós og hafið þar sumarstarf. Er skál- inn um 60 km. frá Reykjavík og stendur neð- an undir fagurri skógarhlíð þar sem Laxá liðast fram dalinn. Er ekki vafi á því, að Mörg börn fá tækifæri til að ferðast eitt- hvað á sumrin. Það finnst þeim öllum til- hlökkunarefni. Sum kaupstaðarbörn fá að fara upp í sveit og vera þar allt sumarið. Það þyrftu þau helzt öll að geta gert. En mörg verða að láta sér nægja að skreppa rétt snöggvast í sveitina og dvelja þar aðeins eina eða tvær vikur. Mörg kaupstaðarbörn verða sem sé að vinna á sumrin og fá aðeins stutt sumarleyfi. dvalið skipta mörgum þúsundum. Staðurinn er líka einhver sá dásamlegasti, sem hugsazt getur. Undurfagur dalur með stóru stöðuvatni, dálitlu skógarkjarri og fjöllum allt í kring. Þar geta drengirnir iðkað íþróttir, farið í fjall- göngur, róið á vatninu eða synt, farið í Ind- íánaleiki í skóginum og ótalmargt annað. í sumar munu flokkar verða í Vatnaskógi sem hér segir: 1. fl. 13.—20. júní (9—11 ára drengir). 2. fl. 20.—27. júní (9—11 ára drengir). (Hlé vegna móts). 3. fl. 4.—11. júlí (piltar 12 ára og eldri). 4. fl. 11.—18. júlí (piltar 12 ára og eldri). 5. fl. 18.—25. júlí (piltar 12 ára og eldri). 6. fl. 25. júlí—1. ág. (yngstir 9 ára). 7. fl. 1.—8. ág. (yngstir 9 ára). 8. fl. 8.—15. ág. (yngstir 9 ára). 9. fl. 15.—22. ág. (aðeins fullorðnir).

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.