Ljósberinn - 01.06.1952, Blaðsíða 16
64
LJOSBERINN
TROLLI NEUTZSKY WULFF:
FANGAR I FRUMSKOGINUM
FR AMHALDSSAGA
EFNISÁGRIP:
Ebbi hafði alizt upp hjá nízkum frœnda
sínum við illt viðurvœri. Kvöld eitt, er hann
var á heimleið í gegn um skóginn, rakst hann
á einkennilega veru. Það reyndist vera Wenk
prófessor, sem var nýfliittur í nágrennið. Pró-
fessorinn var geðveikur og kom Ebbi honum
heim til sín. Ráðsmaður prófessorsins, sem
Hólm hét, kom því síðar til leiðar, að Ebbi
fékk góða vinnu á sveitasetri prófessorsins,
Skógarlundi. Þar átti hann að aðstoða Öla
gamla garðyrkjumann, og þar fékk hann að
heyra um hið óskiljanlega hvarf Leifs, sonar
prófessorsins. Hafði prófessorinn tekið hann
með sér í rannsóknarleiðangur til Suður Ame-
ríku. Dularfullur Hollendingur hafði slegist í
förina með þeim og eina nóttina hvarf hann
ásamt drengnum, eftir að leiðangursmönnum
hafði verið gefið mjög sterkt svefnmeðal. Pró-
fessorinn varð yfirkominn af sorg, og skömmu
síðar missti hann vitið. Veikindi prófessorsins
ágerðust alltaf, er óveður var í aðsigi. Þessi
kafli heitir: Öveðrið.
Lesið nú áfram:
En þó að Ebbi fengi ekki að koma inn,
heyrði hann samt ópin í sjúklingnum, og hann
sá hann, þegar hann hljóp um stofurnar.
Hann líktist aftur vofu eins og um nóttina
fyrir mánuði, þegar Ebbi fann hann í skóg-
inum. Hvíta hárið á honum flaksaðist um höf-
uð honum, og hann tætti fötin af sér í ör-
væntingu sinni.
Það var nær því ómögulegt fyrir Ebba að
vinna. Þrumuloftið hafði einnig áhrif á hann,
og hann var leiður í skapi, þegar hann hugs-
aði um, hve allt var ömurlegt í húsinu þessa
dagana. Hann lauk rólega við það, sem hann
staður þessi muni ná eins miklum vinsældum
á meðal ungra stúlkna og Vatnaskógur hefur
náð meðal drengja.
í sumar munu flokkar verða í Vindáshlíð
sem ’hér segir:
1. fl. 3.—10. júlí (9—13 ára stúlkur).
2. fl. 10.—17. júlí (9—13 ára stúlkur).
3. fl. 17.—24. júlí (stúlkur 13 ára og eldri).
4. fl. 24.—31. júlí (stúlkur 13 ára og eldri).
— Hlé —
5. fl. 5.—12. ág. (9—13 ára stúlkur).
— Hlé —
var að gera' og læddist upp í eldhúsið til þess
að aðgæta, hvort matur hefði verið tekinn til
handa honum eins og venjulega. En enginn
hafði hugsað um það þetta kvöld. Allt var
á rúi og stúi á eldhúsborðinu, eins og jómfrú
Möller hafði hlaupið frá því. Metta gamla
heyrnarlausa gekk um og hristi höfuðið og
botnaði hvorki upp né niður í neinu.
Hann sat stundarkorn á eldhúströppunum
og braut heilann um allt hið sorglega, sem
hafði komið fyrir Wenk prófessor. Svo reilc-
aði hugur hans áfram til Leifs og örlaga hans.
Hann þreyttist aldrei á að hugsa um þetta, og
þrátt fyrir það, sem Hólm sagði, var Ebbi
handviss um, að Leifur væri á lífi.
Hann hafði séð nokkrar myndir af honum
inni í stofu. Hann var aðeins 10—11 ára gam-
all, en hann var myndarlegur, ljóshærður
drengur, og þunnar varir hans báru vott um
skapfestu.
Þungar dunur í fjarska vöktu Ebba upp úr
hugsunum hans. Loksins kom óveðrið! Bara,
að það kæmi nú rigning, þá mundi áreiðan-
lega verða léttara um andardráttinn.
Þrumurnar voru enn langt í burtu. Aðeins
heyrðust lágar drunur. Stuttu síðar leiftraði
elding um himininn, og í þetta sinn var þrum-
an miklu nær. Ebbi sat kyrr á tröppunum og
dáðist að þessari stórkostlegu sjón. Elding-
arnar þutu nú leiftrandi um næturhimininn.
Þær komu nú svo þétt, að það var nær því
6. fl. 16.—21. ág. (K.F.U.K.-konur).
7. fl. 21.—26. ág. (K.F.U.K.-konur).
•
Þátttökugjaldið verður eins lágt og frekast
verður unnt bæði í Vatnaskógi og Vindáshlíð.
Þegar þessar línur eru ritaðar er það ekki
fast ákveðið en verður væntanlega ekki hærra
en 22—25 kr. á dag auk ferðakostnaðar.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu K.F.U.M. á Amtmannsstíg 2 B í
Reykjavík kl. 5—7 e. h. alla virka daga nema
laugardaga. Sími 3437.