Ljósberinn - 01.11.1952, Blaðsíða 3
Styfií böchutittttt <xt •
Uoma iil mm <$ iiamtiS Jnum pcá eUUí>
þw gð slikum Vyrir ðufefoHtl
REYKJAVÍK, NÓVEMBER 1952
9. TBL.
32. ÁRG.
FA-ÐIR VOR DÆIN
Verði þinn viEji svo á jörðu sem á himni
Guð er góður. Hann getur aldrei gert nevia
pað, sem gott er. Hann vill líka, að allir lceri
að gera aðeins það, sem gott er, því að þá líður
öllum vel. Það er vilji
Guðs.
En nú vitum við, að
margir eru vondir. Það
ber svo mikið á því, sem
vont er í heiminum og
því líður líka mörgum
svo illa á jörðunni. Það
er því gott að mega
biðja þessarar bœnar.
Við höfum svo mikla
þörf fyrir það.
En þetta er nú líklega
sú bœnin, sem einna
erfiðast er að biðja af
öllu hjarta. Við getum
nefnilega ekki beðið
eingöngu um, að aðrir
geri vilja Guðs. Við
hljótum að biðja um, að
við gerum hann fyrst
og fremst sjálf. En það
er það, sem flestum
mönnum gengur erfið-
ast að lœra í alvöru —
að gera alltaf vilja
Guðs. Þess vegna er
þetta mjög alvarleg bœn fyrir okkur sjálfum.
Er okkur alvara? Langar okkur til að gera vilja
Guðs? Því ríður mest á!
Við biðjum um vilja Guðs á jörðu eins og
á himni. Hver framkvœmir vilja Guðs á himni?
Það gera auðvitað englarnir. Við biðjum þvi
um að verða eins og þeir.
Hvernig framkvœma
englarnir vilja Guðs?
Við skulum hafa þetta.
þrennt í huga:
1) .Þeir gera vilja
Guðs STRAX. — Engl-
arnir eru ekki seinir á
sér, þeir framkvœma
þegar í stað, það sem
þeir eiga að gera.
2) Þeir gera vilja
Guðs VEL. — Englarnir
reyna aldrei að skjóta
sér undan því, sem þeir
eiga að gera, þeir gera
það allt mjög vandlega.
3) Þeir gera vilja
Guðs með GLÖÐU
GEÐI. — Englarnir
geta aldrei verið með
ólund út af því, sem
þeir eiga að gera, þeir
eru glaðir yfir því a.ð
fá að framkvœma vilja
Guðs.
Mundi ekki margt
breytast í umhverfi
okkar, ef við vœrum sjálf eins og litlir englar og
gerðum alltaf vilja Guðs eins og þeir? Reyn-
um að lcera það og biðjum um það af öllu
hjarta.