Ljósberinn - 01.11.1952, Blaðsíða 6

Ljósberinn - 01.11.1952, Blaðsíða 6
106 LJQSBERINN Myndirnar á þessari síðu: T. h. Götulíf í Cólombó, — t. v. stöðu- vatn í Kandy. Myndirnar á næstu síðu: Að ofan eitt af hofunum í Kandy, — að neð- an Tannarhofið. pálminn gnæfir hnarreistur við himin. Te- plantan er ekki mjög áberandi, nánast sagt eins og venjulegur runni, en hinn mikli fjöldi af henni gefur samt sem áður til kynna, að hér er hún ræktuð í stórum stíl. Húsin úti í sveitunum eru smá, búin til úr leir eða tré og mjög oft með stráþaki. Þau standa inni í miðjum skóginum, oft með blómabeðum í kring, og gaggandi hænsni krafsa á milli runnanna. Oftast eru húsin byggð með svölum, þar sem fjölskyldan get- ur setið í kvöldsvalanum í næði og hvílzt að loknu erfiði. Hestar eru engir á Ceylon, og þess vegnip notar bóndinn uxa sem dráttardýr. Maður getur séð þá í tvíeyki draga plóginn á eftir sér úti á akrinum. Þegar bóndinn fer í kaup- staðinn með varning sinn, notay hann vagn, sem líkist einna mest gömlu, amerísku sléttu- vögnunum. Hann hefur tvö stór hjól og er með strákofa. Eigandinn situr alveg frammi á kjálkunum og lætur svipuna ríða miskunn- arlaust á. dýrunum, sem oft eru skinhoruð. Eftir fjögurra tíma ferð erum við komin til Kandy, um það bil 550 m yfir sjávarmál. Hér mætir okkur eins og í Cólombó iðandi líf brúnna manna, og vei'zlunin gengur fjör-lega í kauphöllunum. Hérna liggur kjöt og fiskur, svart af fuglum, við hliðina á kókoshnetum, banönum, mandarínum, mangóávöxtum, peahnetum og álnavöru 1 miklu úrvali. Og sé heppnin með okkur, getum við öðlast ósvikna perlu, unna í fjöllunum. Á miðju opnu svæði hefur töframaður tekið sér bólfestu, og meðan mannfjöldinn horfir heillaður á, töfrar hann fram litla and- arunga, sem synda upp í bolla með vatni. Bærinn Kandy liggur eins og í dalverpi milli skógivaxinna ása, og hinir kappsömu íbúar hafa búið til snoturt stöðuvatn, og í því synda skjaldbökur og fiskar af mörg- um tegundum. Meðfram vatninu eru gras- flatir og blómabeð, og allt er gert til að hrífa ferðamennina, sem streyma að úr öll- um heimsálfum. Gróðurríkið er auðugt hér, eins og alls stað- ar á Ceylon. Skógabotnarnir eru þaktir græn- gresi, og bambustré, pálmar, brauðaldintré og klifui’plöntur berjast um jarðnæðið. Rétt við vatnið er hof Búddhatrúarmanna, Tannarhofið (Temple of the.Tooth). Meiri- hluti íbúanna á Ceylon er Búddhatrúar, og hof þeirra er því að finna víðsvegar um landið. Auk þess hefur fjöldi Búddhatrúar- manna heimilishof, þar sem þeir safnast sam- an á morgnana í bæn, áður en þeir hefja vinnu dagsins. Áður en við göngum inn í Tannarhofið, verðum við að taka af okkur skófatnaðinn, og á sokkaleistunum sýnir leiðsögumaður okkur hofið. Það er ekki laust við, að okkur

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.