Ljósberinn - 01.12.1952, Blaðsíða 15

Ljósberinn - 01.12.1952, Blaðsíða 15
LJDSBERINN 127 Ég veit, að ég er velkominn, þú vinur drengja, í faðminn þinn, og legg því veg og vilja minn á vald þér, Jesús Kristur. Með œskuþrótt, sem á ég mér, ég allt vil styðja, er fagurt er og rétt og satt, en þjóna þér, ég þó vil helzt, ó, Jesús. Á œvi minnar árdagsstund ég allt þér gef mitt líf, mitt pund,' og gef það strax með, Ijúfri lund, þú lífsins herra, Jesús. Ég þrái líf í Ijósi og náð, það líf, er skín í sannri dáð, mig langar til í lengd og bráð að lifa með þér, Jesús. Mig hefur dreymt um gull og glans og glcesta frœgð og nautna dans. Nú þrái eg helzt þann heiðurs krans, að hljóta þig, ó, Jesús. Er lífsins sigursveig ég vinn, þér sjálfum fceri ég kransinn minn, því ég er lífs og liðinn þinn, minn Ijúfi Drottinn Jesús. Friðrik Friðriksson.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.