Ljósberinn - 01.12.1952, Blaðsíða 30
142
LJDSBERINN
Kappreiðarnar:
Tveir hestamenn þreyttu oft kappreiðar á
gæðingum sínum. Dag nokkurn kom þeim sam-
an um að veita verðlaun þeim hestinum, sem
síðar kæmi að marki. Þeir lögðu af stað og i
fyrstu gekk allt vel. En er nær dróg markinu,
hægðu báðir á sér, og er nokkur spölur var
ófarinn í mark, námu báðir staðar hlið við
hlið og fengust hvorugur til að halda áfram.
Kunningja þeirra bar þar að og spurði, hverju
þetta sætti. Er hann fékk að heyra um verð-
launin, kvaðst hann geta gefið þeim gott ráð.
Árangurinn varð sá, að báðir þeystu af stað.
Hvaða ráð gaf hann þeim?
Tannhjólin.
Tvö tannhjól eru jafnstór. Annað tann-
hjólið snýst um hitt, sem er kyrrt. Hversu oft
snýst það um öxul sinn, á meðan það fer eiiia
umferð í kring um það, sem kyrrt er?
Hans og Gréta.
Hans er 20 ára og helmingi eldri en Gréta
var, þegar Hans var jafn-gamall og Gréta er
nú. Hversu gömul er Gréta?
Langstökk.
Tveir drengir höfðu sér það til dægrastytt-
ingar á stóru hafskipi að reyna sig í langstökki.
Annar stökk fram eftir skipinu, en hinn aftur
eftir því. Annar hafði hraða skipsins með sér,
en hinn móti. Hraði skipsins var 20 mílur.
Á landi mundu þeir hafa stokkið jafn langt.
Hvor stökk lengra á skipinu?
Gátur:
1. Hvað getur maður tekið í hægri höndina,
en aldrei í þá vinstri?
2. Hvaða menn hafa útlit sitt á móti sér?
3. Hvað er það, sem er lægra, þegar það er
með höfuðið á sér en þegar það er án þess?
4. Hvar eru árnar alltaf vatnslausar?
5. Hver er sá, sem hlustar á mörg leyndar-
mál, en segir aldrei frá þeim?
Teiknaðu þessa fleti upp á gagnsætt blað,
klipptu þá síðan út og reyndu að búa til úr
þeim mynd.
Geturðu reiknað út, hve hún er orðin gömul
þessi?
Talnaþraut:
Geturðu raðað þessum tölum sam-
á þann hátt, að útkoman úr hverri
röð fyrir sig verði jöfn hvort sem þú
reiknar lárétt eða lóðrétt?
Eldspýtnaþraut:
Hér er eldspýtum raðað í fimm ferhyrninga.
Geturðu nú fært til tvær eldspýtur á þann
hátt, að ferhyrningarnir verði aðeins fjórir
eftir?
Manstu það, sem þú lest?
1. Hvað hét fanginn í skógarhúsinu?
2. Hvað fékk Kristín í jólagjöf frá fanganum?
3. Hvað hét kennari í 12 ára bekk E?
4. Hvar var kirkjan, sem Ölafur konungur
Tryggvason lét vígja á aðfangadagskvöld?
5. Hvað hét hundurinn, sem Sveinn bjargaði?
6. Af hvaða þjóðflokki voru erkióvinir
Maskepetoms?
7. Hvað fékk Dóra litla marga böggla í
jólagjöf?
8. Hvað hét skipið, sem Wenk prófessor fór
með til Suður-Ameríku?
9. Hvað hefur Ljósberinn fengið marga nýja
áskrifendur á árinu?
10. Hvað hefur þú útvegað Ljósberanum
marga nýja áskrifendur?
— Svör við heilabrotum eru á bls. 143. —
1+2+3
4+5+6
7+8+9