Ljósberinn - 01.12.1952, Blaðsíða 31

Ljósberinn - 01.12.1952, Blaðsíða 31
LJDSBERINN 143 LJÚSBERINN ______________________________ Bama- og unglingablað með myndum. — Útgefandi Bókagerðin Lilja. — Ritstjóri Ástráður Sigursteindórsson, kennari. — Utanáskrift: Ljósberinn, Pósth. 276, Rvík. Kemur út sem svarar 12 síðu blaði á mánuði, þar af tvöfalt sumarbláð og þrefalt jóla- blað. Áskriftargjald kr. 20.00. Gjalddagi 15. apríl. Askriftargjaldi í Reykjavík veitir móttöku Steinar Þórðarson í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar h.f. Prentaður í Félagsprentsmiðjunni h.f. Framhaldssagan — Frh. af bls. 141. stamaði hann með titrandi röddu. Flemming og Ebbi störðu hvor á annan. Báðir fundu, að þetta var hátíðleg stund. — En gerum ráð fyrir, að það hafi ekki verið Leifur. Veiztu, hve langt er síðan? — Það voru tvö ár síðan! svaraði Flemm- ing sigrihrósandi. Wenk var nú orðinn rólegri. Hann lagði höndina þungt á öxl Flemmings. — Drengur minn! Ég held, að þú vitir ekki sjálfur, hve mikilvægt þetta er. í raun- inni er það fyrsti mjói þráðurinn, sem get- ur leiðbeint okkur til Leifs. Þú ert sá fyrsti, sem hefir fundið verksummerki, Flemming. Þess vegna skaltu fá að vera tneð okkur og fara eftir þeim. Það átt þú sannarlega skilið. Flemming hefði vafalaust stokkið heljar- stökk á þilfarinu, ef hann hefði getað. En hann var of feitur til þess, vesalingurinn. í stað þess þrýsti hann hönd Wenks af öll- um kröftum. Á eftir tók hann að leika hnefa- leik við Ebba. Gleðin varð að fá útrás á einhvern hátt. — En eftir á að hyggja, varstu ekki hrædd- ur við að hætta þér út í ókunnan bæ með svona leiðsögumanni? sagði Wenk og brosti þurrlega. — Hugsaðu þér, ef hann hefði ginnt þig í gildru. Suður-amerískur hafnar- bær er ekki hættulaus staður fyrir ótor- trygginn ferðamann! — Ég gleymdi alveg að hugsa um það, sagði Flemming og fölnaði í framan. — Ef ég hefði hugsað mig um, hefði ég sjálfsagt ekki haft kjark til þess. Frh. í næsta blaði. - SVÖR - SVÖR VIÐ HEILABROTUM á bls. 142: Kappreiðarnar: Hann sagði þeim að skipta um hesta. Tannhjólin: Tvisvar. Hann og Gréta: Gréta er 15 ára. Gátur: 1. Vinstri hendina á sér sjálfum. — 2. Þeir sem horfa í spegil. — 3. Koddinn. — 4. Á landakortinu. — 5. Eyrað. Talnaþraut: Það má t.d. gera á þennan hátt: 1. röð: 8+3+4, 2. röð: 1+5+9 og 3. röð: 6+7+2. Langstökk: Þeir stökkva jafnlangt. Hraði skipsins hefur engin áhrif á vegalengdina. SVÖR VIÐ HEILABROTUM I SÍÐASTA BLAÐI: Talnaþraut: í þrjá efstu hringina setur þú tölurnar 1, 8 og 3 — talið frá vinstri. I næstu þrjá hringi setur þú tölurnar 6, 5 og 4 og í þrjá þá neðstu 7, 2 og 9 — allt talið frá vinstri. Út- koman verður þá 20. Bœkur og höfundar: 1. Daniel Defoe, 2. Jonathan Swift, 3. F. H. Burnett, 4. Lewis Wallace, 5. Gunnar Jörgensen, 6. Johanne Spyri, 7. Fr. Friðriksson, 8. Enid Blyton, 9. A. Chr. Westergaard og 10. Trolli N. Wulff.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.