Ljósberinn - 01.12.1957, Síða 22
Þegar þeir komu upp á næsta hjalla, gerð-
ist það. Þeir voru rétt búnir að taka af sér
skíðin til þess að hvíla sig stundarkorn, þeg-
ar annað skíði Kára fór að renna niður brekk-
una alveg af sjálfsdáðum. f fyrstu rann það
aðeins mjög hægt af stað. Þeir hlupu báðir
á eftir því, en hraðinn jókst, og áður en þeir
vissu af, var það horfið niður hlíðina.
— Hvað eigum við nú að gera? spurði Kári
alveg örvilnaður.
— Við verðum að setja á okkur þau skíði,
sem við höfum og fara á eftir því. Það hefur
markað greinilega slóð í snjóinn, svo að það
verður auðvelt að finna það, svaraði Einar.
— En setjum svo, að það hafi brotnað?
— Ef það hefur ekki runnið alla leið niður
í byggð, liggur það í bezta tilfelli á grúfu
fvrir neðan. En við skulum koma okkur nið-
ur og gæta að því. Og áður en Einar hafði lok-
ið við setninguna, var hann lagður af stað nið-
ur eftir. Kári fylgdi honum vel eftir á einu
skíði — enda voru stafirnir til mikillar hjálp-
ar. Það var bara hryggilegt, að brottrunna
skíðið hafði farið niður mesta brattann, en
það var ekki nema eðlilegt.
— Halló, Kári! Hvar ertu? Einar stóð langt
niðri í skóginum og kallaði. En hann hefði
ekki þurft þess, því að Kári kom brátt. Það
var einkennilegt, hvernig hægt var að bjarga
sér, þegar í klípu var komið.
— Það virðist hafa farið alla leið niður, kall-
aði Einar og benti á greinilega slóðina, sem
bugðaðist milli trjástofnanna beint niður í
móti.
— Það lítur út fyrir það. Bara, að það hafi
c:kki brotnað —
Þeir renndu sér áfram niður eftir og námu
varlega staðar nokkra metra fyrir ofan Stóra-
hamar, sem þeir kölluðu svo. Það var óvit að
reyna til að komast þaðan og niður til járn-
brautarinnar. Það var lífshættulegt. En þeir
urðu að fara niður, því að skíðið hafði farið
þarna niður. Þeir gengu spölkorn til baka,
gengu síðan út á aðra syllu og gægðust niður.
— Sjáðu! Þarna stendur það! Kári hróp-
aði upp yfir sig af gleði. Skíðið hafði farið
beint fram af Stórahamri og stóð upp á end-
ann mitt á milli beggja járnbrautarteinanna.
— Hefur þú nokkurn tíma séð nokkuð
svona einkennilegt? Einar gat ekki stillt sig
um að hlæja. Það hefur í raun og veru farið
iram af hamrinum, komizt af stað aftur í
brattanum, gert skarð í skaflinn, sem plógur-
inn hefur myndað, hoppað upp og staðnæmzt.
Já, nú varstu sannarlega heppinn.
— En, sagði Kári og spratt á fætur, við
verðum að ná í það, áður en lestin kemur.
— Kemur hún bráðum?
— Já, kortér-fyrir-eitt-lestin----
Þeir lögðu af stað eins hratt og þeir kom-
ust. Nú var erfiðara fyrir Kára að ganga á
aðeins einu skíði. Þarna blés lestin, sem var
að koma, — nú mundi hún verða hérna eftir
svo sem tvær mínútur. —
— Okkur verður að takast það, Einar!
hrópaði Kári með grátstafinn í kverkunum,
annars brýtur lestin skíðið í þúsund mola.
Þeir skunduðu áfram, Einar á undan, enda
var hann á báðum skíðunum. Kári var á eft-
ir á öðru skíðinu. Hann sökk djúpt niður í
hvert sinn, er stigið var með hægra fæti í
brekkuna. Nú heyrðu þeir dunurnar frá lest-
inni. Þær urðu æ sterkari. Hún nálgaðist
Stórahamar, þar sem skíðið stóð á miðri
brautinni. Nú blés hún fyrir beygjuna, sem
þarna var. Drengirnir gengu, svo að svitinn
bogaði af þeim. Hjartað barðist í þeim, svo
að þeir heyrðu hjartsláttinn. Nú voru dun-
urnar frá lestinni rétt við. Ó, nei, þeim tæk--
ist þetta líklega ekki. Þeir voru aðeins hálfri
mínútu of seinir---------
Það hvein í hemlum og hjólum. Hljómur
af stáli barst eftir teinunum. Hvað átti þetta
að þýða? Var lestin að nema staðar? Já,
sannarlega nam lestin staðar. Kári varð
hræddur. Var það honum að kenna? Það var
hann, sem átti skíðið. Þeir gengu samt alla
leið niður að eimreiðinni. Tveir járnbrautar-
menn gengu eftir brautinni. Lestarstjórinn
kom á eftir þeim. Þeir r.ámu staðar aðeins
andartak og litu á skíðið og héldu síðan
spölkorn áfram. Hvað átti þetta að þýða?
— En af hverju málaði afi þinn skíðið
rautt? spurði lestarstjórinn brosandi, þegar
þeir komu saman 10 mínútum seinna hjá
eimreiðinni.
— Það er ekki gott að segja, svaraði Kári,
c-n hann segir alltaf eitthvað á þá leið, að það
geti einhvern tíma komið sér vel.
— Já, það er áreiðanlegt. En hann hafði
sjálfsagt ekki dreymt um, að skíðið þitt
LJÓSSER I N N
15«