Ljósberinn - 01.04.1960, Side 16
HEIMRY MORTOIM STANLEY • MYNDASAGA • 1
1) Stanley og Livinstone,
eru tvö nöfn, sem ekki verða
aðskilin. Hvernig fundum
þeirra bar saman í myrkviði
Afríku er saga, sem aldrei
gleymist og er einn skemmti-
iegasti viðburður úr sögu land-
könnuða. Henry Morton Stan-
ley var amerískur blaðamaður
og ævintýramaður. Nafnið
Livinstone var honum ekkert
annað en viðfangsefni, sem
hann átti að skrifa um, þangað
til fundum þeirra bar saman i
Afríku, þar sem dr. Livinstone
hafði horfið í trúboðs- og rann-
sóknarleiðangri.--------
Stanley var einn af mestu
könnuðum Afríku. Hann ólst
upp í hinni mestu fátækt en
varð að lokum hyltur sem mik-
ilmenni. Hann fæddist í Wales
árið 1841. Foreldrar hans áttu
við hina mestu fátækt að búa
og skömmu eftir fæðingu Stan-
leys, sem hét raunverulega
John Rowland, strauk faðir
hans á brott frá konu og barni.
Móðir hans gat ekki séð fyrir
honum og sendi hann á vinnu-
hæli. Meðferð unglinga, sem
fullorðinna á þessum illræmdu
stöðum, var hin versta og upp-
eldisáhrifin þar gerðu Stanley
hlédrægan og að því er virtist
kaldlyndan. — — — Þegar
Stanley var orðinn 17 ára gam-
all, sá hann sér tækifæri til að
strjúka af vinnuhælinu og
komst á skip, sem fór til Banda-
rikjanna. Þegar skipið kom til
New Orleans, strauk Stanley
af skipinu til að leita gæfunn-
ar í hinu ókunna landi. Hann
átti ekki nokkurn pening, enga
vini eða félaga og ekki sér-
þekkingu í neinni iðn eða öðru
starfi svo hann gæti aflað sér
fjár. Þetta var árið 1885.
2) Gæfan blasti við hinum
unga Rowland, strax og hann
kom til Bandarikjanna. Þegar
hann var að leita sér að vinnu
varð hann svo heppinn að rek-
ast á mann að nafni Henry
Morton Stanley, sem var efn-
aður kaupmaður og átti ekkert
barn. Morton Standley tók svo
miklu ástfóstri við þennan
unga mann, að hann ættleiddi
hann, fékk honum vinnu og lét
hann taka upp nafn sitt. Nú
gat hinn ungi Henry Morton
Stanley notið alls þess, sem
hann hafði þráð, en orðið að
FRAMH. Á BLS. 47