Ljósberinn - 01.06.1960, Blaðsíða 6
lendir menn líka — hugsað mikið um það,
að nauðsynlegt væri að klæða landið aftur
skógi, eins og það var til forna.
Félagið vinnur að því að friða gömlu birki-
skógana okkar, rækta nýja skóga og leiðbeina
mönnum í meðferð skógar. Milljónir trjáa
hafa verið gróðursett á vegum þess. Einstak-
lingum og skógræktarfélögum út um land,
hefur það útvegað plöntur. — Félagið gefur
út ársrit ákaflega lærdómsríkt fyrir alla, sem
vilja vinna að fegrun landsins.
Svo kvað Jónas Hallgrímsson:
„Fagur er dalur og fyllist skógi
og frjálsir menn, þegar aldir renna,
skáldið hnigur og margir í moldu
með honum búa, — en þetta skeður!“
— Ljósberinn óskar Skógræktarfélagi ís-
lands góðs gengis og þakkar félaginu fyrir
leyfi til að nota myndir og styðjast við ýms-
an fróðleik Ársritsins.
*
Landgræðslusjóöur
Á bls. 67 sjáið þið mynd af merki, sem selt
var á Þingvöllum 1944, en þá var gengið frá
stofnun íslenzka lýðveldisins, eins og þið vit-
ið. Ágóði af sölu merkisins var látinn renna
í sjóð, sem þá var stofnaður og nefnist Land-
grœðslusjóður. Með ýmsu öðru móti hefur
þessum sjóði verið aflað tekna, en honum
á að verja til þess að rækta hverskonar gróð-
ur, gras eða tré, þar sem nokkur möguleiki
er til þess.
Það var góð hugmynd. Ekki geta allir unn-
ið að ræktun landsins. Þá er að gefa pen-
inga til landgræðslusjóðs, svo að því fleiri
geti unnið að því að gera landið okkar feg-
urra og betra.
HEIMSINS
Áður en jjöllin fœddust og jörðin og
heimurinn urðu til, frá eilífð til eilífðar
ert þú, ó Guð.
í upphafi skapaði Guð himin og jörð.
En jörðin var þá auð og tóm, og myrkur
grúfði yfir djúpinu. Þá sagði Guð: Verði
ljós! Og það varð strax ljós. — Það var
fyrsti dagur.
Annan dag sagði Guð: Verði festing milli
vatnanna! Og það varð. Og Guð kallaði
festinguna himin.
Þriðja dag sagði Guð: Vötnin undir
himninum safnist í einn stað, svo að þurr-
lendið komi í ljós! Og það varð. Og Guð
kallaði þurrlendið jörð. En safn vatnanna
kallaði hann haf. Síðan sagði hann: Á jörð-
inni vaxi gras, jurtir alls konar og aldintré!
Og það varð. Jörðin grænkaði og á henni
uxu jurtir og ávaxtatré alls konar.
Fjórða dag sagði Guð: Verði Ijós á fest-
ingu himinsins! Og það varð. Guð skap-
aði sól og tungl og stjörnur, til að lýsa
jörðina.
Fimmta dag sagði Guð: Vötnin verði
kvik af fiskum og fuglar fljúgi um jörð-
ina! Og Guð skapaði fugla og fiska, ótelj-
andi tegundir, smáa og stóra.
Sjötta dag sagði Guð: Verði alls konar
dýr á jörðinni! Og það varð.
Síðast skapaði Guð manninn.
Og Guð leit allt, sem hann hafði gert,
og sjá, það var undursamlega gótt.
En sjöunda daginn hvíldist Guð. Og
hann blessaði hann og helgaði.
Eg trúi á Guð föður, skapara himins og
jarðar.
70
IJOSBERINN