Vaka - 01.11.1927, Qupperneq 58
[vaka}
BAUGABROT.
HVÍ GJÖRHIST GUÐ MAÐUR?
Eins og yður sjálí'sagt rekur minni til, áheyrendur
mínir, var það hinn heilagi Anselmus frá Kantarabory
(1035—1109), er með riti sín Cnr deus homo? færði
i'riðþægingarkenningu kirkjunnar í það horf, er henní
þótt hún geta við unað. En á meðan hann var að
rita verk þetta, á meðan hann var að reyna að færa
sönnur á, hvers vegia Guð hefði gjörzt maður,
dreymdi hann að sögn undarlega drauma, er hann skildi
ekki í fyrstu, og raunar ekki fyrr en hann hafði lokið
verki sínu. Ég ætla nú að ljúka þessum fyrirlestrum
mínum með því að segja yður frá þessum draumför-
um Anselms. —
Einhverju sinni eftir að hinn heilagi Anselm hafði
velt fyrir sér þeirri mikilvægu spurningu, hvers vegna
guð hefði gjörzt maður, har svo við nótt eina, að hann
dreymdi, að hann væri kominn á þann stað, þar sem
.lakoh Israel hafði séð himinstigann rísa, og hann sá
engla Guðs ganga upp og niður stigann. En er Anselm
leit himininn opinn yfir sér, hugkvæmdist honum að
ganga upp stigann og alla leið upp að hásæti Guðs tiJ
þess að fræðasl af Guði um það, hversvegna hann hefði
gjörzt maður. Og hann tók nú að ganga upp stigann.
Og af einskærri lotningu fyrir Drottni horfði hann aug-
unum til jarðar, á meðan hann var að ganga upp. En er
hann var kominn upp á himinskörina og stóð andspænis
hásæti Guðs, þá dirfðist hann að líta upp, en, sjá! önd-
vegið var autt og óskipað. Þá varð hinum heilaga An-
selmi fehnt við, en hann hugsaði með sér, að Guð væri
orðinn maður, og jafn nær sneri hann aftur niður til
jarðar.
Þessi draumur hafði nú þau áhrif á Anselm, að hann
hætti um stund að hugsa um viðfangsefni sitt. En smám-
saman tókst honum þó að friða sálu sína með því, að