Vaka - 01.12.1929, Síða 35
[vaka]
LYFJAVERZLUN Á ÍSLANDI.
289
iið hafa hæpinn eða breytilegan lækningakraft, sann-
prófa verksmiðjurnar áður en þær selja j)au, en það
gera lyfjabúðirnar ekki. Ég nefni t. d. af þeim lyfjum,
sem hér eru greind Oleum Jecoris Aselli (þorskalýsi),
Tinctura Digitalis, Tinctura Strophanti og Tinctura
thebaica (ópíumsdropar), sem öll eru þannig sannpróf-
uð og lækningagildi þeirra ákvarðað (lyfin standard-
iseruð).
Ég hygg að þessi samanburður, þó að hann sc ekki
lengri, gefi nokkurn veginn rétta hugmynd um, hver
munur er yfirleitt á lyfjaverði þessara tveggja verk-
smiðja og lyfjaverðinu í íslenzkuin lyfjabúðum. Telst
mér til, að verðmunurinn jafni sig upp með að vera
sem næst 120%. Eftir þeim upplýsingum, sem Lyfja-
verzlun ríkisins hefir góðl'úslega Iátiö mér í té, mun
óþarfi að láta kostnaðinn við að koma tilbúnum lyfja-
vörum til íslamfe, ásarnt hæfilegum heildsölukostnaði,
fara fram úr 20—30%. Ætti þá að vera hægðarleikur
að kaupa hin ágætu lyf þeirra Burroughs Wellcome &
Co. og Parke, Davis & Co., að öllu fullgerðum og um-
búnum til afhendingar, ætla vel fyrir öllum kostnaði
hæði til heildsala og smásala og lækka jió lyfiaverðið
ekki óverulega. Gerum kostnaðinn við heildsöluna og
heimflutninginn 30%. Smásalan, liygg ég, að væri kon-
unglega borguð með öðrum 30%, þar sem hún yrði svo
einfökl sem hugsast getur og ekki í öðru fólgin en því
að afhenda lyfin fullgerð, umbúin og jafnvel áletruð.
Miðað við þetta mætti því, auk alls annars ávinnings,
lækka lyfjaverðið frá því sem nú er um meira en 20%.
Sagan er jió hvergi nærri fullsögð með þessu og auð-
gert að lækka lyfjaverðið stórum meira. Bæði þessi
firmu tjáðu mér, að ef um mikil viðskifti væri að ræða,
væri meiri afsláttur sjálfsagður. Og er ég nefndi til
dæmis, að lyfjaheildsala, er ætti að birgja land eins og
ísland, sæktist eftir að kaupa af þeim fleiri eða færri
19