Nýtt kirkjublað - 15.02.1908, Blaðsíða 2

Nýtt kirkjublað - 15.02.1908, Blaðsíða 2
26__ ^NÝT/T IQRKJUBLAí) _____ Innað prsstsGmbœtti við dómkirkjuna. Lög g j öfin vill g er a s ö fnuðinum v el til. önnur grein í lögum síðasta alþingis um skipun presta- kalla hljóðar svo: „I Reykjavíkur-prestakalli skulu vera tveir þjóðkirkju- prestar, dómkirkjuprestur og annar prestur honum jafnhliða. Landsstjórnin, í samráði við biskup, skipar fyrir um aðstöðu þeirra livors til annars, samband sín á milli og verkaskiftingu í söfnuðinum“. Þessi grein prestakallalaganna var samþykt á þinginu ó- breytt eins og hún kom frá milliþinganefndinni i kirkjumál- um. I ástæðum nefndarinnar fyrir frumvarpinu er þetta skýrt rækilega. „Tillögur“ nefndarinnar eru í fárra höndum, og er rétt að flytja hér ástæðurnar fyrir greininni. „Nefndin leggur til, að í Reykjavíkur-prestakalli skuli hér eftir vera tveir þjóðkirkjuprestar, dómkirkjupresturinn og annar fastur prestur honum samhliða. Leggur nefndin þetta til með hliðsjón á þvi, hve afar-mannmargt þetta prestakall er orðið, svo mjög sem kaupstaðurinn hefir vaxið á næst- Iiðnum mannsaldri. Árið 1890 voru íbúar prestakallsins 3886 -þ- 564 (í útsókninni) en um síðustu áramót [í ársbyrjun 1906] voru þeir orðnir c: 9400 eða rúmur J/9 allrar þjóðar- innar. Að vísu er, eftir upplýsingum sóknarnefndar, alt að þvi J/8 þessara manna í fríkirkjusöfnuðinum, en það sem þá verður eftir, er þó svo margt (alt að 6300), að flestum mun koma saman um, að það sé lítt kleift að veita svo fjölmenn- um söfnuði viðunalega prestsþjónustu Reyndar mætti ráða bót á þessu með því að halda aðstoðarprest, eins og dóm- kirkjupresturinn hefir gert nú um nokkur undanfarin ár. En þar sem jafnfjölmennur söfnuður á í hlut, getur það ekki á- litist rétt, að sóknarpresturinn taki sér aðstoðarprest, án þess að söfnuðurinn eigi þar nokkurt atkvæði um, en það á söfn- uðurinn ekki, tneðan ræða er um eingöngu persónulegan kapellán. Fyrir því þykir nefndinni ekki nægja, að gera dómkirkjupresti að skyldu að halda aðstoðarprest eins og nú er, heldur leggur húu það til, að stofnað verði annað sjálf-

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.