Nýtt kirkjublað - 15.02.1908, Blaðsíða 3
stætt prestsembœtti við dómkirkjuna i líkingu við það sem i
Danmörku og Noregi er kallað „resíderandi kapellán", eða
„annar prestur", er sé kosinn af söfnuðinum á sama hátt
og eftir sömu reglum og dómkirkjupresturinn, og síðan veitt
embættið af landsstjórninn*, eins og honum. Hvað snertir
aðstöðu prestanna hvors til annars, er gert ráð fyrir því, að
landsstjórnin, í samráði við biskup skipi fyrir um það, og
hefir nefndin hugsað sér, að vel geti farið á, að líkt yrði á-
kveðið um samband þeirra sín á milli og verkaskiftingu, og
á sér stað í Danmörku, að öðru leyti en því, að hver prest-
urinn verði látinn vinna þau aukaverk, sem hann er beðinn
uin, og eigi borgunina fyrir þau óskerta".
Það er rétt athugað h]á nefndinni að sitt hvað er það
fyrir Reykjavíkur-söfnuð að fá annan prest sjálfstæðan, sem
söfnuðurinn kýs, og að hafa áfram þjónustu aðstoðarprests.
Lögin ætlast til að söfnuðurinn geti valið manninn eftir sínu
höfði, og eins verður það Iátið frjálst hverjum og einum
safnaðarlim að kjósa um þá tvo presta til allra aukaverka.
Niðurjöfnun Jcemur með nýjaprestinum.
Nýja prestsembættið verður þvi að eins stofnað, að þá
komist og til framkvæmda hér nýju lögin um laun sóknar-
presta. En í þeim lögum er nýmæli, sem sett var í
neðri deild, um niðurjöfnun sóknargjalda. Aðalmaður kirkju-
löggjafarinnar á þinginu, sóra Sigurður Stefánsson, taldi það
nýmæli fremur meinlaust og gagnslaust, virtist telja það efa-
samt, hvort það yrði notað.
Það er þó enginn minsti vafi á því, að heimildin til að
jafna niður sóknartekjunum yrði notuð í kaupstöðunum og
þá sérstaklega í Reykjavík. Verkamenn mundu óðara krefj.
ast þess, og hefðu margfaldlega atkvæðaafl til þess að koma
þvi fram.
Lögmæltar sóknartekjur eru preststíundir, offur, lausmanns-
gjald, lambsfóður og dagsverk. Eftir nýju lögunum innheimtir
sóknarnefndin þessar tekjur fyrir prestlaunasjóðinn, en svo er
safnaðarmönnum heimilt að ákveða það á lógmætum safnað-
arfundi, fyrir eitt ár i senn, að niðurjöfnunargjald komi í
staðirm „eftir reglum, er samþyktar eru á lögmætum safnað'