Nýtt kirkjublað - 15.02.1908, Page 8

Nýtt kirkjublað - 15.02.1908, Page 8
Nú hefir Reykholt veriS auglýst, og veitist eitt sér frá næstu fardögum. Eftir kirkjustjórnarinnar verklega skilningi á samsteypu-mál- inu, virðist óumflýjanlegt að hún bjóði séra Magnúsi á Lágafelli hálfa Reykjavík, og — gefi honum enda kost á að þjóna ofan frá Lágafelli. Alt er hér samstæðilegt, hvorumtveggja megin, bindur hvað annað að réttri hugsan, nema hvað alt Mosfellsprestakall gengur eigi óskift til Reykjavíkur, Brautarholtssókn á Kjalar- nesi á að ganga til Reynivalla. En eflaust félli alt í ljúfa löð með þá sameiningu hjá presti og sóknarmönnum, og þyrfti ekki á henni að standa. — — Það mun þó alls eigi vera í ráði, hjá kirkjustjórninni, að þvi er eg má fullyrða, að gefa Mosfellssveitarprestinum kost á embættinu hér, og Reykvíkingar sættu sig eigi heldur við slíkt valdboð, um hvaða prest sem væri að ræða, og séra Magnúsi á Lágafelli mundi eigi til hugar koma að reyna að nota sér valdboðið. Og jafnsjálfgefin afleiðing er það af gjörðum kirkju- stjórnarinnar í Reykholtsmálinu, að þetta prestsembætti hér verður að auglýsast eftir nýju lögunum, að séra Magnúsi á Lágafelli frágengnum. Og þjóðkirkjuverðinum -*kirkjustjórninni - ætti öllum frem- ur að vera það áhugamál, að fá sem fyrst það embætti skipað. Til allrar hamingju á kirkjustjórnin afturkvæmt úr ógöng- unurn, sem hún tæpti á tánum með því að bjóða séra Magnúsi á Gilsbakka að taka við Reykholtsprestakalli, að söfnuði fornspurðum. N. Kbl. vonar að önnur blöð, sem unna safn- araðarfrelsinu í landinu, taki vel með í strenginn. Önnur ráð verður að hafa, en að svifta söfnuði rétti sínum, löghelg- uðu sérstæði og sjálfstæði samkvæmt hinum fyrri presta- kallalögum, er voru samhliða og samtímis þágildandi prestskosn- ingarétti. Síðasta þing rýmkaði stórum prestskosningarréttinn, hann hafa nú allir þjóðkirkjumenn, konur sem karlar, fullveðja — 21 árs að aldri, skulum við segja, upp úr næsta þingi — hvað sem gjöldum líður. Lengra verður eigi farið. Og svo ætti að svifta fjórðung landsmanna þessum rétti!

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.