Nýtt kirkjublað - 15.02.1908, Side 10

Nýtt kirkjublað - 15.02.1908, Side 10
84 NÝTT EIRKJUBLAB markinu. ÞaS er guðseðlið innra með sjálfum oss, hverjum og einum, sem Iætur oss skynja og kjósa sannleikann — þann sannleikann, sem oss kemur bezt í j)örf, og guðseðlið það, gefið oss mönnunum, er sjálf uppsprettulind alls sannleika, er sjálfur guð í oss.----- Treystið guðseðlinu innra með sjálfum yður! Undirtektir mannssálarinnar er prófsteinn sannleikans. Bókstafsþrældómurinn er hræðilegt haft. Það reynist slæma hneykslunarhellan fyrir margan guð- rækinn og greindan mann á vorum dögum þetta, að telja sig bundinn af þeim og þeim bókstaf ritningarinnar. Tökum það dæmið, að því sé haldið á lofti, að allir menn verði á end- anum hólpnir. Mörgum góðum manni verður þá að hugsa eða segja svo: Víst er um það, að það er mjög sennilegt, mig dauðlangar til að mega trúa þvi; en — hvað segir ekki ritn- ingin: „Og þessir skulu fara burt til eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs lífs“. Honum verður svo sem ekki fátt ritningarstaða manninum þeim, og hann heíir ekkert veður af því, að þegar þetta var hugsað og talað, sem hann er að fara með, þá átti það við allt annað, og það er alveg óskylt því efni, sem það nú er látið eiga við. — — Maðurinn, sem hér er verið að tala um, er trúhneigður, hann er fremur vandaður, og að öðru leyti eins og fólk er flest, er gagnsmaður, og hefir mörgu að sinna. Hann kemst í ógöngur þegar hann fer að hugsa um trúarmálin eftir því sem honum hefir kent verið, og seinastgefur hann alt slíkt upp á bátinn, það tefur hann um of og gerir honum gramt í skapi, og hann hættir alveg að hugsa um trúarefni. Það er svo oft að bókstafur ritningarinnar virðist kenna þveröfugt við það, sem mannshjartað kristnaða hugsar og þráir, mannshjartað sem líkjast vill Kristi. Tökum sem dæmi — af svo fjölda mörgum — grimmu orðin i 137. sálmi: „Heill þeim er þrífur ungbörn þin og slær þeim niður við stein“. Er þessi staður innblásinn af anda Jesú Krists? Vill göfugt og gott mannseðli kannast við að þetta sé rétt og satt? Víst ekki. Enginn er sá, er feta vill í fótspor Jesú, að hann hafi yndi af þvi að sjá ungbarni slegið niður við steini. En það er siður en svo að vér eigum að fárast yfir þess-

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.