Nýtt kirkjublað - 15.02.1908, Qupperneq 16

Nýtt kirkjublað - 15.02.1908, Qupperneq 16
40 NÝTT KIRKJUBLAÐ á að bætast eftir nýju lögunum. Myndar- og maktarmenn eiga í hlut og munu þeir treysta sér að geta haldið fríkirkj- unni uppi. Fréttin er þó fremur óvænt, þar sem ekki mun um skoðunarmun að ræða í trúarefnum, og þeir munu ætla að fá sér prestlærðan mann til forstöðu. Alvaldir eru þeir nú um prestskosninguna. Kirkjurnar fá þeir að sjálf- sögðu til nota, gangi hvert mannsbarn þessara 3 eða 4 sókna úr þjóðkirkjunni eins og talað er, en eignartekjur presta- kallsins hljóta þeir að missa og er það gjaldaviðbót fyrir þá við prestslaunin. Það ætti að vera töluvert íhugunarefni fyrir þessar sóknir, hvort vert er að slíta félagsskapinn við þjóðkirkjuna. Betur ógert nú. Bíði meiri umskifta. Á sóknarnefndarfundi þjóðkirkjunnar i Reykjavík hefir nýskeð komið til umræðu prestsmálið, sem hér er rætt að framan og er það nú i góðum höndum dómkirkjuprests og sóknarnefndar til framgangs. Til áréttingar þurfa vel sóttir og áhugasamir safnaðarfundir. Sjómanna-prédikanir verða fluttar í báðum kirkj- unum á sunnudaginn kemur. þýðingrin á riti séra Campbells er mjög „lausleg", og köflum slept. Réttri hugsun og áherzluorðum á þó eigi að vera raskað. „Babel-dóttir“ í sálminum er sama og Babel eða Babýlon, borgin er dóttir landsins. Framhald kemur, sem rúm leyfir, í næstu blöðum. Bjarmi, krislilegt lieimilisblað. Kemur út tvisvar í mdnuði. Verð 1 kr. 50 au., i Ameríku 75 cent. Ritstjóri Bjarni Jónsson kennari. Breiðablik, mdnaðarrit til stuðnings íslenzkri menning. Utgef. Ólafur S. Thorgeirsson, Winnipeg. Ritsljóri séra Friðrik J. Bergmann. Verð 1. doll. Sumeiningin, mánaðarrit hins ev.lút. kirkjuf. ísl. i Vesturbeimi. Ritstjóri: sira Jón Bjarnason i Winnepeg. Hvert númer 2 arkir. Barnablaðið „Börnin“ er sérstök deild i „Sam.“ undir ristjórn sira N. Steingrims Porlákssonar. Verð hér á landi kr. 2,00. Fœst hjá kand. Sigurb. A. Gíslasyni i Rvik. Ritstjóri: ÞÓRHALLUR BJARNARSON. Fólagsprontsmiðjan.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.