Nýtt kirkjublað - 15.03.1908, Side 1

Nýtt kirkjublað - 15.03.1908, Side 1
NÝTT KIRKJUBLAÐ HALFSMÁNAÐARRIT FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING 1908. Reykjavik, 15. marz 5. blað freistingarsaga jfesú. Inngangsorð. „Djöfullinn freistar Jesú“. Það er guSspjallstextinn 1. sunnudag i föstu. Og guðspjalliS það varð svo ríkt í huga mínum á sunnudagskveldiö var, að annað varð að bíða sem var í smíðum hjá mér, til þess að konia hér að hugleið* ingum um freistingu Jesú. Trúarlega dæmisagan eða skáldsagan sú lýkur upp fyrir oss og skýrir fyrir oss, betur og Ijósar en rétt allar aðrar sögur guðspjallanna, Messíasar-hugsjón Jesú sjálfs, og þá eigi síður hvernig trúaðir játendur hans, fyrsta mannsaldurinn eftir dauða hans, samjiýðast þeirri Messíasar-mynd, sem jieim hafði birzt í persónu frelsarans, svo ólík sem hún annars var Messíasar-myndinni, sem Gyðingaþjóðin hafði skapað sér um liðnar aldir. Skáldsagá er það, segi eg. Nafnið rétta, hildaust og ó- tvírætt. Varla er nokkur sá nú orðið innan vorrar kirkju, sem í hjarta sínu trúir því, að hér sé um sannsögulegan, virkilegan viðburð að ræða. Prestarnir neita því hvorki né játa, þeir hafa án þess að fara út í það gott umtalsefni út af freistingarsögunni. Orðugra er viðfangs með börnin. — Það er stóra umtalsefnið fyrir sig og það bíður sins tíma. En það er hið dýrðlega við trúaðan biblíulestur hugsandi og rannsakandi mannsanda, að guðspjalla-frásögurnar verða þá einmitt svo miklu auðugri fyrir trúarlífið og siðgæðið, en áður. Rosknum guðfræðingum ofbýður, hvaða farg hefir ver- ið lagt á frjálsa hugsun þeirra, hvað þeim hefir verið boðið af slaðlausum skýringum, og hvað þeir hafa boðið öðrum.

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.