Nýtt kirkjublað - 01.05.1908, Page 1

Nýtt kirkjublað - 01.05.1908, Page 1
NYTT KIRKJUBLAÐ HALFSMÁNAÐARRIT FYRIE KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING 1908. ,Svað er kristindómurinii?' Til eru sannindi svo sjálfsögð, að ekki þykir þurfa að taka þau fram sér á parti, nema þá verið sé að tala við ein- hverja kálfa með hálfri greind eða minna en það. Meðal slíkra sanninda hugði eg þau vera, að kristindómurinn — kristna trúin — sé fyrst og fremst trú. Því hvað ætti „trú“ að vera annað en „trú“ ? En nú hefir reynslan sýnt mér, að manni getur orðið hált á að gera ráð fyrir slíku, jafnvel þótt kálfar eigi ekki í hlut, heldur greindir menn. í ritdómi um „Áramót“ III hér í blaðinu hélt eg fram þeirri kenningu, að „kristindómurinn sé fyrst og fremst líf og kristinn fyrst og fremst sá, sem lifir lífi Jesú Krists.“ Eg áleit þá kenningu svo alment viðurkenda í kristninni, að jafnvel vesturíslenzkir guðfræðingar mundu taka hana gilda enda þótt einum þeirra hefði orðið það á að tala um kristindóminn svo sem væri hann samsafn af kenningum, og kristinn sá, sem viðurkendi þessar kenningar — tryði þeim. Eg vissi ekki betur en að þetta væri beint kenning Jesú Krists og postulanna, auðsæ hverjum þeim manni, sem þekti Nýja testamentið sitt. Eg vissi ennfremur ekki betur en að þetta væri hálútersk kenning, þar sem eg mundi eftir hinuin al- kunnu orðum Lúters: „Kristindómurinn er ekhi kenning heldur líf, ekki orð heldur kraftur, ekki teikn heldur fylling- in sjálf.“ En svo kemur febrúar-blað „Sameiningarinnar" með langa ritgerð, þar sem þessari kenningu er harðlega neitað sem „nýrri“ villukenningu, sem skilgetnu afkvæmi „nýju guð- fræðinn&r“ — nema hvað? Reykjavik, 1. maí 9. blað

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.