Nýtt kirkjublað - 15.05.1908, Blaðsíða 4

Nýtt kirkjublað - 15.05.1908, Blaðsíða 4
116 NÝTT KIRKJUBLAÐ það, að þar læra menn árlega, tugum og hundruðum saman, að afstýra því aS sóttkveikjan hræSilega berist til annara, — og þaS hvað tiðast til allra nánustu ástvinanna. Og heilsuhælið, sem upp á að rísa á næsta sumri, verð- ur þá til þess — ásamt vaxandi þekking almennings á veikinni og hlýðni viS fyrirmæli læknanna, — að berklasjúkir menn verða eigi lengur „óhreinir“ í augum meðbræðra sinna. inakveðjur að varnaði. Mesti fjöldi berst af bréfum frá prestum og leikmönnum, þar sem fylsta samhug er lýot við stefnu blaðsins. Ekki er verið að prenta það nema eitthvað annað og meira sé þá með til alhugunar. Og enn miklu siður fer ritstj. nð bafa eftir bréfkntta, til að koma að árásum og dylgj- um í nnnnra garð, frá einhverjum nafnlausum. — Geri þeir slikt sem það sómir. — En hér fara á eftir tveir bréfkaflar sem hreifa attiuga- semdum og enda aðfinslum við blnðið sjálft, og koma jnfnframt við þýðingarmikil atriði, sem eru i margra buga, og þurfa nð skýrast og ræða-t. Fyrri brét'kaflinn er eftir ungan prest og liinn siðari eftir roskinn leikmann. I Flestir sofa hér svefni sinnuleysisins. Það er ekki til neins að neita því. Rökin eru nóg fyrir hendi þvi til sönn- unar. Illa sóttar kirkjur og vanrækt kvöldmáltíðarborð og fullkomið afskiftaleysi manna af trúmálum sannar það belur en langt mál. Eg hefi haft mikla löngun til að vekja fólk af þessum svefni, en lítið orðið ágengt. Eg hefi reynt að tala til þess bæði i kirkju og utan kirkju, en enga ávexti séð. En ég á svo bágt að hugga mig við ósýnilegu ávextina eins og ég heyi'i marga af embættisbræðrum mínum gera. Af þessum ástæðum fæ ég ekki helur séð en þörf sé á kirkju- blaði, og því vil ég af hjarta biðja guð, að láta anda sinn vera yfir því „Nýja Kirkjublaði', sem þér nú gefið út einn. Samt er það sannfæring mín að öll kirkjubjöð ávinni litið, fyr en kirkjan er leyst úr ríkisfjötrunum, og þess vegna ætt um við fyrsl og fremst að berjast fyrir því. Nýja kirkjulög- gjöfin líkar mér heldur ekki að ýmsu leyti. Einkum eru margar af prestakallasamsteypunum alveg óþolandi, eins og t. d. . . . Þeir sanna það sem reyna.

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.