Nýtt kirkjublað - 01.06.1908, Blaðsíða 2
122 ^NÝTTKffigJSS^
|ömul og ntj guðtfrœði.
i.
Siðastliðin missiri hefir nýtt hugtak tekið að gjöra vart
við sig í hinum kirkjulega íslenzka blaðaheimi bæði vestan-
hafs og austan. Þetta hugtak er „nýja guðfræðin". I seinni
tíð tekur maður sér varla svo nokkurt þeirra í hönd, að ekki reki
hann sig einhversstaðar á þetta nýja hugtak. Það er bók
Campbells hins enska með þessu nafni (The new theology),
sem hrundið hefir þessu hugtaki fram á sjónarsviðið og tákn-
ar það í blöðum voruni flestar ef ekki allar nýungar, semframhafa
komið í heimi guðfræðinnar á síðustu tímum og á einhvern
hátt koma í bága við eldri skoðanir. Hverjar mætur útgefendur
sumra þessara blaða hafa á þessari „nýju guðfræði", má ráða
af síðasta blaði „Sameiningarinnar", þar sem séra Jón Bjarna-
son setur hana við hliðana á „únítaratrúnni og andatrúar-
þvættingnum" sem hann gefur þann vitnisburð, að það „hafi
verið fundið upp til þess að særa kristna trú í hjartastað",
enda er nafnið „nýju guðfræðingarnir" orðið beint hnjóðsyrði
hjá þessum mönnum, líkt og „vantrúarmenn," „guðleysingj-
ar" og þvílikt.
Hvað mundi valda þessum ímugusti blaðanna á „nýju
guðfræðinni", sem þeir nefna svo og lýsa á fyrirlitningu sinni
með því að merkja hana með gæsalöppum? Honum'veldur
aðallega það, að hún er ný, — að hún litur öðruvísi á ýmis at-
riði trúfræðinnar en guðfræði eldri tíma gjörði. En þessum
góðu mönnum er svo farið, að þeim stendur ótti af öllum ný-
ungum að því er til trúmála kemur, en þessi ótti hefir aft-
ur snúist upp í ofsalegt hatur, eins og oft vill verða. En
hatrið, eins og kunnugt er, gerir menn hvorki dómgleggri né
réttsýnni.
Nýunga-hræðslan og nýbreytni-hatrið er nú engan veg-
inn nýtt í sögu mannkynsins, og innan kirkjunnar hefir vilj-
að bóla á því alt frá fyrstu kristni. Sjálfur mannkynsfrels-
arinn fékk að kenna á því. Enginn vafi er á, að nýunga-
hræðsla og nýbreytni-hatur átti nokkurn þátt í óvildinni ogfjand-
skapnum, sem hann mætti á lífsleið sinni. Sömuleiðis fékk
Páll postuli nógsamlega að kenna á hinu sama. Þegar hann