Nýtt kirkjublað - 01.06.1908, Side 8

Nýtt kirkjublað - 01.06.1908, Side 8
128 NtTT KIRKJUBLAÐ kristindómsins og beri skynbragð á þau. Sé um fjölmenna söfnuði að rœða er ómögulegt að yfirheyrsla þessi verði ann- að en siðasakaverk. Reynslan sannar þetta bezt. Tökum til dæmis fermingarathöfn í Reykjavíkurkirkju. Hve mikill hluti safnaðarins mun þar heyra spurningu prestins og svör barn- anna ? — Hinsvegar verður siður þessi óþarfur, til að tryggja söfuðinum þekkingu barnanna í kristnum fræðum. Það gjöra ársprófin á miklu betri og eðlilegri hátt. Eg tel þvi æskilegt að siður þessi yrði lagður niður þar eð hann bæði spillir áhrifum fermingarathafnarinnar á hjörtu barnanna og verður framvegis óþarfur og þýðingarlaus. — Hann hefði að skaðlausu niátt hverfa fyrri, en nú er ekki hin minsta ástæða til þess að halda honum við lengur. — Ymsir munu líta svo á, að eigi megi fella hann niður nema með sér- stakri lagaheimild, og væri þvi æskilegt að héraðsfundir og syno- dus vildu taka málefni þetta til ítarlegrar yfirvegunar og fram- kvæmda. Rafnseyri á sumardaginn fyrsta. Böðvar Bjarnason. SúsavíkuF-kirkja. Húsavíkurkirkja var reist 1906. Hún er krosskirkja, hin eina hér á landi önnur en Hjarðarholtskirkja, en miklu stærri. Grunnflötur kirkjunnar er krossmyndaður eða líkur ref- skák að lögun. Gengur sinn armurinn í hverja áttina og er hver um sig 12 álna breiður og 6 álna langur, austurarmur- inn þó 672 al. og er i honum kórinn, en miðkirkjan milli ;arm- anna 12 álnir á hvern veg. Kiikjan er þannig 24^/^ al. frá vestri til austurs og 24 áln. frá norðri til suðurs. í þremur örmunum, norður-, vestur- og suðurarmi, eru loft með upp- hækkuðum bekkjum. I horninu milli veslur- og suðurarms er turninn, 6 álnir á hvern veg, og á honum aðaldyr kirkjunnar og eikarhurðir miklar fyrir. Á neðsta gólfi turnsins er því forkirkjan og upp úr henni stigi í forkirkju á 2. gólfi turnsins, og þaðan er

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.