Nýtt kirkjublað - 01.06.1908, Qupperneq 8
128
NtTT KIRKJUBLAÐ
kristindómsins og beri skynbragð á þau. Sé um fjölmenna
söfnuði að rœða er ómögulegt að yfirheyrsla þessi verði ann-
að en siðasakaverk. Reynslan sannar þetta bezt. Tökum til
dæmis fermingarathöfn í Reykjavíkurkirkju. Hve mikill hluti
safnaðarins mun þar heyra spurningu prestins og svör barn-
anna ? — Hinsvegar verður siður þessi óþarfur, til að tryggja
söfuðinum þekkingu barnanna í kristnum fræðum. Það gjöra
ársprófin á miklu betri og eðlilegri hátt.
Eg tel þvi æskilegt að siður þessi yrði lagður niður þar
eð hann bæði spillir áhrifum fermingarathafnarinnar á hjörtu
barnanna og verður framvegis óþarfur og þýðingarlaus. —
Hann hefði að skaðlausu niátt hverfa fyrri, en nú er ekki hin
minsta ástæða til þess að halda honum við lengur. — Ymsir
munu líta svo á, að eigi megi fella hann niður nema með sér-
stakri lagaheimild, og væri þvi æskilegt að héraðsfundir og syno-
dus vildu taka málefni þetta til ítarlegrar yfirvegunar og fram-
kvæmda.
Rafnseyri á sumardaginn fyrsta.
Böðvar Bjarnason.
SúsavíkuF-kirkja.
Húsavíkurkirkja var reist 1906. Hún er krosskirkja, hin
eina hér á landi önnur en Hjarðarholtskirkja, en miklu stærri.
Grunnflötur kirkjunnar er krossmyndaður eða líkur ref-
skák að lögun. Gengur sinn armurinn í hverja áttina og er
hver um sig 12 álna breiður og 6 álna langur, austurarmur-
inn þó 672 al. og er i honum kórinn, en miðkirkjan milli ;arm-
anna 12 álnir á hvern veg. Kiikjan er þannig 24^/^ al. frá
vestri til austurs og 24 áln. frá norðri til suðurs. í þremur
örmunum, norður-, vestur- og suðurarmi, eru loft með upp-
hækkuðum bekkjum.
I horninu milli veslur- og suðurarms er turninn, 6 álnir
á hvern veg, og á honum aðaldyr kirkjunnar og eikarhurðir
miklar fyrir. Á neðsta gólfi turnsins er því forkirkjan og
upp úr henni stigi í forkirkju á 2. gólfi turnsins, og þaðan er