Nýtt kirkjublað - 01.06.1908, Qupperneq 12

Nýtt kirkjublað - 01.06.1908, Qupperneq 12
132 NÝTT KIRKJUBLAÐ ekki verið sæll, meðan hann er vondur, hve lengi sem hann er |)að. — Kverin öll, nema Valdimars, fara hér miklu lengra, ])ar sem ])au kenna raeð sterkum orðum eilífa útskúfun. — Ef kirkjunni er alvara að koma þeirri fullkominni trú og sannfæringu inn hjá kristnum mönnum, að nokkrar — og ])á líklega mjög margar — mannssálir hreppi að síðustu þau voðalegu afdrif, sem lýst er 1 útskúfunarkenningunni, tekur hún þá ekki burtu aftur gleðiboðskapinn, sem hún gefur með annari hendinni, og lætur sorgarboðskap 1 staðinn? Gæti nokkur góð sál, nokkur kærleiksrík vera, verið sæl, ef hún vissi af slíkum ósköpum? Mér þykir það kostur við Valdi- marskver, að mér finst það tali um þetta mál með fullri al- vöru, en fari ekki út yfir hæfileg takmörk. Fyrir ljóðabúninginn verður börnunum auðveldara og skemtilegra að nema kverið. En vera má að hann valdi og því, að þeim verði erfiðara að fá yfirlit yfir efnið; en með tilsögn mun mega bæta úr því. Ekki held eg að það sé heppilegt, að láta börn hætta við að nema kver orðrétt, og eg hefi mikla reynslu fyrir því, að flestum börnum veitir létt að læra Helgakver, ef þau fá leiðbeining um aðferðina. Auðvitað þarf að gefa þeim fyrst ljóst yfirlit yfir hvern kafla, segja þeim efnið í honum, svo að þau viti það, skýra svo efni hverrar greinar, svo að þau einnig viti hana, og þá fyrst taki til að nema hana. Það er ótrúlegt, hvað börn, 8—10 ára, geta verið fljót með þessari aðferð að læra alt kverið, svo að þau kunna það reiprenn- andi og orðrétt, spjalda á milli. Það er ónæmt barn, sem kemur því ekki vel af á einum vetri. En hitt er ekki gott, að börnin læri kverið sem þulu, áður en þau fá nokkurt yfirlit eða skýringu, þótt þau verði mörg að gera það, og takist það vonum fremur. En þótt það sé þreytandi nóm, þá hverfur það og gleymist, ef þau fá síðan góða útskýringu. Þá hættir þeim að leiðast kverið, og hlakka jafnvel til kenslustundanna. (M. A.). Synodus verður Iialdin laugardaginn 20. þ. m. Séra Eggert Pálsson á Breiðabólsstað prédikar. Meðal anuars verða þar vænt- anlega umræður um kenningarfrelsi, og um breytingarnar á gjöld- um til prests og kirkju, sem skattaneíndiu fer fram á.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.