Nýtt kirkjublað - 01.08.1908, Page 1
NÝTT KIRTvJUBLAÐ
HALFSMÁNAÐARRIT
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING
1908.
Reykjavik, 1. ágúst
15. blað
,,!inakveðjur að varnaði^.
Tvær hafa þær birzt í N. Kbl. Mætti ég biðja um rúm
fyrir tiina þriðju ?
Málefnið, er bráfkaflarnir flytja, er hið tímabærasta um-
talsefni, og eg hika mér ekki við að segja hið mikilvægasta
er á dagskrá getur komið Iijá þjóð vorri. Er þá líka við-
búið, að það verði hið örðugasta.
Ekkert viðfangsefni mannsandans er jafn-ftrðugt, og
þungróið sem að lifa sig inn í sjálfan sig — lifa sig inn i
hið sannasta og bezta, sem felst í djúpi sálarinnar. Oskandi
að allir vildu gera það.
Unga prestinum er líka, sem vænta mátti, ant um það,
en honum gengur ekki greitt að vekja fólkið: Afskiftaleysi
af trúmálum sé orðið svo ríkjandi, og sinnuleysið svo magn
að, að tilraunir hans hafi orðið árangurslausar. Það bæti nú
heldur ekki úr skák, að N. Kbl. vilji koma þeirri flugu inn
hjá fólki, að freistingarsagan sé skáldsaga, og það muni
draga dilk eftir sér.
Það eimir ekki svo litið eftir hjá oss af þeirri ætlan að
ekki megi Iireyfa neitt við kenningum kirkjunnar. Það sé
svo sem sjálfsagt til niðurdreps fyrir kristindóminn í landinu.
En sannleikurinn er sá, að fjöldi skynbærra og hugsandi
alþýðunianna hefir fengið pata af því, að vísindin séu að
rengja ýmsar kenningar kirkjunnar. Prestarnir hafa yfirleitt
látið þetta hlutlaust. Þeir hafa af skiljanlegum og óskiljan-
legum ástæðum ekki fylgst með, sízt opinberlega „Rétttrún-
aðar“ — kenningin í ýmsum atriðum, oghinar ákveðnu eldgömlu
trúarjátningar hafa látið illa í eyrum margra. Þannig hefir