Nýtt kirkjublað - 15.08.1908, Page 3

Nýtt kirkjublað - 15.08.1908, Page 3
NÝTT KIRKJTJBLAÐ 187 fyrir í þessu stutta yfirliti. Niðurstaðan varð loks sú, að bæði kennaraembættin skyldu lögð niður að ári liðnu. Hvað þá tekur við, er óvíst enn; en víst er um það, að marqir eru þeirrar skoðunar, að nú megi það ekki lengi dragast úr þessu, að kirkjufélagið komi á fót þeirri mentastofnun, sem það hefir svo lengi langað iil að eignast. En tii þess að það geti orðið svo í góðu lagi sé, þarf áhuginn fyrir því máli að verða enn almennari vor á meðal en enn er orðið. Trúmála-umræður voru baldnar eitt kveld um „Gildi trúarjátninga“, og hóf séra Jón Bjarnason umræðurnar með alllangri inngangsræðu, sem verður prentuð í „Áramót- in“, sem út koma i þessum mánuði. Þar verða líka prent- aðir fyrirlestrarnir tveir, sem haldnir voru á þinginu, annar eftir séra Runólf Féldsteð. er nefnist „Hærri krítikin", og hinn eftir þann er þetta ritar, og nefnist það erindi: „Jesús Krist- ur, guðmaðurinn". — Kosning embættismanna fór fram i þingbyrjun. Séra Jón Bjarnason, sem hefir nú verið íorseti Kirkjufélagsins 23 ár samíleytt. gaf ekki kost á sér til endurkosningar, og var í bans stað kosinn séra Björn B. Jónsson. Hinir embættis- mennirnir voru allir endurkosnir: skrifari séra Fr. Hallgrims- son, féhirðij- Elís Thorwaldson, varaforseti séra N. S. Thor- lákson, varaskrifari séra K. K. Olafsson og varaféhirðir Jón J. Vopni. Selkirk-söfnuður sá um það, að pj-ýðisvel fór i alla staði um kirkjuþingsmenn, og var það meðal annai-s gert til skemt- unar, að farið var einn dag með alla kirkjuþingsmenn og aðra gesti á gufuskipi niður eftir Rauðá, niður undir Winni- peg-vatn, og var það hin unaðslegasta skemtiferð, því veður var hið bezla og útsýni fagurt og nóg af glaðværð, söng og hljóðfæj'aslætti innanborðs. Líka bauð kveníélag safnaðarins kirkjuþingsmönnum til máltíðar eitt kveld. — — Dagana tvo næsta á eftir kii-kjnþingi héldu Hin sam- einuðu Bandalög ársþing sitl í Winnipeg, og í sambandi við það þing var líka haldinn annar ársfundur Hinna sam- einuðu íslenzku lútersku söngfélaga, og héldu þau söng- félög mikla og vandaða söngsamkomu i kirkju Fyrsta lút. safnaðar tvö kveld; súngu þar um 130 manns undir stjórn séra H. B. Thorgrímsens, og þótli mönnum mikið til söngs-

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.