Nýtt kirkjublað - 01.09.1908, Qupperneq 3

Nýtt kirkjublað - 01.09.1908, Qupperneq 3
NÝTT KIRKJTJBLAÐ. 195 Engum lögum yrði ])á hlýtt og engin takmörk yrði á yfir* gangi og sællífi annarsvegar og á skorti, kúgun og vonlaus- um bágindum hinsvegar. Dygð, skylda og frumregla yrði í fyrirlitningu eins og meiningarlaus orð. Maðurinn skeytti ])á ekki um neitt annað en sjálfan sig og. notaði alla liæfi- leika sálar sinnar í eigingirninnar þjónustu. Það sem guð- neitunarkenningin gerir ráð fyrir að maðurinn sé, nfl. eitt af villidýrunum, það yrði þá orð að sönnu. Vert er að taka það sérstaklega fram, að hin kristna trú hefir einkarmikla þýðingu fyrir frjálsan félagsskap. Það er full ástæða til að efast um, að borgaralegt frelsi geli 'átt sér sér stað án kristinnar trúar. Svo mikið er víst, að þar sem hún er ekki ráðandi, njóta rnenn hvorki jafnréttis né óhlut- drægni. Kristindómurinn styður frjálst félagsskapar fyrirkomu- lag, fyrst og fremst vegna þess, að andi hans er andi frels- isins. Það er að segja: andi virðingar fyrir rétti og gagni annara. Kristindömurinn viðurkennir meðfætt jafnrétti allra manna. Hann gerir sér far um að uppræta ofríkishvatir vorr- ar dýrslegu náttúru; en þær vilja kúga fjöldann undir vald hinna fáu. Hann leiðir, með góðu uppeldi eigi síður en með boðorðum, hugi mannanna til guðs, til að auðsýna honum einum þá Iotningu og tignun, sem of oft hefir verið ranglega auðsýnd krýndum meðbræðrum. 011 stefna kristindómsins er frjáls. Hann leggur grund- völlinn undir frumreglur góðgirninnar, réttvísinnar og virðing- arinnar fyrir manneðlinu. Það er ekki rétt, þó margir liti svo á, að andi frelsisins komi eingöngu fram í því, að standa lást á sínum rétli og lúta sjálfur engri kúgun; hann kemur miklu fremur fram í því, að bera virðingu fyrir annara rétti og styðja hann, en forðast vandlega að gera nokkrum manni rangt til. Slíkur er andi kristindómsins. Þar sem hann ræður, er trygg- ing fyrir persónulegu og félagslegu frelsi manna. En hún er engin, þar sem hann ræður ekki. 1 annan stað styður kristindómurinn frjálst félagsskap- ar fyrirkomulag með þeim hætti, að hann dregur úr þörfinni fyrir það, að beilt sé opinberu valdi við menn til þess að knýja þá til að hlýða lögunum. Það gjörir hann með því, að hann hefir þau áhrif á menn, að þeir verða „sjálfum sér lög- mál“ og hafa sjálfkrafa taum á tilhueigingunni til að beila ó-

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.