Nýtt kirkjublað - 01.09.1908, Qupperneq 5
NÝTT KIRKJUBLA.Ð J97
og — að undantekningum sleptum — í góðu samlyndi innbyrð-
is1). Og svo er guði fyrir að þakka, að framkoma vor í dag-
legu lífi vitnar ekki um eins ilt hugarfar, eins og vera mundi
ef trúarlif vort vœri eins dauft, eins og látæðis-trúmennirnir
bera oss á brýn. Vér leggjnm að vísu minni áherzlu á
að sýnast trúmenn, heldur en að vera það í anda og sann-
leika. Vér tökum hógværan og kyrlátan kristindómsanda langt
framyfir trúar-mikillæti. Og vér höldum jafnvel, að trúar-lát-
æði og bókstafs-hártoganir geti verið brot á rnóti 2. boðorð-
inu. Auðvitað er oss mjög ábótavant. En vér treystum því,
að guð bjálpi oss til að taka stöðugum framförum í hinni frið-
sælu kærleikstrú kristindómsins: — trú í anda og sannleika.
Þýð.
léÍlMaður kcnmmaður um rciiirúanina.
Nálega allar binar stærstu rétttrúuðu kirkjudeildir hins
ensk-ameríska beims hafa átt með sér allsherjarfundi í sumar
á Englandi. Ein jieirra deilda eru hinir svo nefndu Kon-
gregatíónalistar, eða safnaðamenn 2). Þeir áttu allsherjarfund
sinn í Edinborg i sumar. Aðalþingræðuna hélt dr. Gordon
frá Bosfon, hinn mesti kennimaður. Þykir sú ræða einhver
hin merkasta, er flutt hefir verið á sumrinu á öllum hinum
mörgu kirkjufundum. Eg þýði hér fáeinar málsgreinir til
smekks fyrir Nýja Kirkjublaðið og til íhugunar vorum eigin
kennilýð:
Texti doktorsins var „Sannleikans andi“, Jóh. J6. 13.
Ræðumaðurinn hóf fyrst að tala um það, bve mjög
kennimenn óttuðust tálcn vorra tíma, kvað allan þorra þeirra
heldur kjósa hálfgildis hlekki, en algert frelti. Kvað hann
1) Greinin var send í vor sem leiö. Ritstj.
*) Þeir hól’ust seint. á 1 (>. iild; hétu þó Brownistnr og síðan In-
dcpendistar, þvi að þeir höl’nuða hœði biskupustjórn, og öldungum (pres-
hylerum) Þeir bygðu mest Nýja-Englund í Ameríku og hafa jafnan
þólt frjólslyndir — út á við.
M. J.