Nýtt kirkjublað - 01.09.1908, Síða 6

Nýtt kirkjublað - 01.09.1908, Síða 6
NÝTT KIRKJUBLAÐ '198 fæsta trúa svo fast frelsinu, að þeir mættu sjá til fulls hvílíkt tækifæri nú byðist til stórra og vegsamlegra framkvæmda. Þeir skylfu af ótta gagnvart trúnni, þegar þeim væri einsætt að geta séð, að það sem mestu ræður, ábyrgist sig sjálft, — að það þurfi engrar staðfestingar við nema sitt eigið eðli og á- gæti, enda byggist það eða hvíli á engu öðru en sér sjálfu, það sé ævarandi eins og heildin, sem það er partur af. Þetta hugleysi kallaði doktorinn djúpgróna efasýki gagn- vart krafti kristinnar trúar. Aðaláhyggjuefni ætti ekki að vera hið rétttrúaða, heldur það sanna: Yitinu varði mest um eitt, það að vita Iiið sanna. Hjartanu varðaði einungis um eitt, að elska hið santia. Og viljinn eigi ekki nema eitt markmið, ]tað að gera hið sanna. Þessi eftiileit eftir sannleikanum, kvað ræðunt. hafa mjög svo breyzt síðan eftir postulanna daga, breyzt í eftirspurn eftir rétturn skoðunum, er santta mætti með erfðakenningun- um. Þessi upprunalega sannleiksþrá sálarinnar hefir mjög orðið að lúta fyrir íhaldsenti erfðaskoðana, svo og því, sem tryggja skyldi frið og félagsfylgi. -— — Þegar menn hugðust byggja musteri hinni kristnu trú þannig, að hver villutrúarmaður yrði úti byrgður, þá lokuðu menn líka úti spámanninn. Það var ofríkisvald sama anda og þess, sem olli krossgöngu Jesú Krists. Síðar í ræðu sinni lýsir dr. Gordon með anda og krafti áhyggjutn manna og vandræðttm viðvtkjandi samanburði, uppruna og sögugildi guðspjallanna, en skeytingarleysi um þau guðspjöll, sem nú gerast fyrir augum vorum: Vér höfttm bari.-t fyrir þann sannleik, sem þá var. en höfum alt of lítið hirt um þann sannleik, sem nú er. Vér höfurn hamast móti hugsjónum, fornum og nýjum, eins og dulargrímum. en höfunt hvorki verið nógu einarðir né haft mikilmensku til að sjá nakinn sannleikann í þeirri veröld, sem vér lifum i. Hér, en ekki þar, er vor sannleikur. Hér, en ekki þar, er þín sál, saman ofin sál hróður þíns með ægilegu handi skyldunnar. Þú hefir fallið niður í djúp efasýki og örvinglunar sakir atburða umliðinna alda, af því að þú hefir ekki opnað augu

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.