Nýtt kirkjublað - 01.09.1908, Síða 11

Nýtt kirkjublað - 01.09.1908, Síða 11
NÝTT KTRK.TUBLAÐ 203 Þetta er eitt lítið bibliurannsóknardæmi af ótal mörgum. Oss er ]>að bið helgasta og háleitaska málefni að 0]>na fjár- sjóðu heilagrar ritningar fyrir kristnu fólki, íslenzku mælandi, eftir ])ví skilningsljósi sem guð gefur oss. Og ])að er hjartanleg sannfæring vor, að rannsókn heil- agrar ritningar, og einlæg viðleitni að ná sem réttustum skiln- ingi orða og atburða, veki fylst og hezt kærleikann til þess orðs, sem öllu orði fremur heitir og má heita innblásið af guði. Úr bréfum frá Vest.ur-Tslendingum: (I) Skólamálið er eyðilagt. Fyrir kirkjuþing var fastákveðið að vikja séra Frið rik (J. Bergmann) frá kennaraembættinu, vegna skoðana hans, og setja annan mann í hans stað. Það mæltist illa fyrir, og var sá vegui- þá fremur kosinn, að gera háðum kennur- unum, Magnúsi Magnússyni og séra Friðrik jafnt undir höfði. Um það voru þó allir sammála að kenslan við Wesley-skólann hafði gengið ágætlega, heppnast langt fram um allar vonir, en lítið verið notuð í St. Peter. Séra Friðrik hélt þvi fram á kirkjuþinginu, að fyrst ætti að setja sig af sem prest; að prédika tvisvar hvern sunnu- dag væri ólíkt hættulegra og líklegra til að leiða menn í sál- arháska, en tilsögn i tungumáli. En við þvi var skelt skoll- eyrum. Séra Friðrik mátti prédika eins mikið og honum sýndisl, en ekki kenna. Þetta sýnir óeinlægnina. Það er ekki sálarháskinn sem ntenn óltast. Menn eru að eins að ná sér niðri. Sárast er þetta vegna íslenzkunnar og þjóðernisins. Ur sérstökum skóla verður aldrei neitt; það er ofuretli. Það yrði lika lil ills eins þegar andrúmsloftið er svona. Séra Friðrik J. Bergntann sagði upp bezta og álitlegasta prestakalli í kirkjufélaginu, þar sem alt var i hezta lagi, til |>ess að leggja fram sina mikilhæfu krafta til að varðveita ís- lenzkuna og þjóðernið. Að honum sem kennara er svo beint ofsókninni, án allra saka, fyrir það eilt að hann lokar eigi augunum fyrir sannleiksljósi þekkingarinnar i bib'íufræðum nútímans. (II) Það sögulegasta, sem hér hefir gerst, er þetta nýafstaðna kirkjuþing, Eg held, að það sé að mörgu leyti merkilegasta

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.