Nýtt kirkjublað - 01.09.1908, Síða 12

Nýtt kirkjublað - 01.09.1908, Síða 12
204 NÝTT KIRKJUBLAÐ þingið, sem haldið hefir verið hér vestan liaís. Séra Jón og hans menn hafa næstliðið ár unnið að því að fá þá eina kosna á þing, sem þeir gætu treyst að fylgdu sér að málum, og þeir höfðu fengið Winnipegmenn úr söfnuði séra Jóns kosna fulltrúa frá fjarlægum söfuuðum. Alt átti að miða að því, að })eir gætu rekið séra Friðrik frá skólanum. Séra Jón halði með sér alla fulltrúa úr söfnuðunum í Canada, nema söfnuði séra Friðriks Bergmanns. Prestana tiafði hann líka með sér, nema séra Friörik Hallgrímsson. Þeirra megin var mikill meirihluti, og þeir létu mikið yfir sér, því að þó að við Bandaríkjamenn fylgdumst allir að, vorun) við færri. Við stuðluðum að forsetakosning séra Björns. Þeir höfðu ekki búist við því, og áttuðu sig ekki fyr en kosning- ár voru um garð gengnar. Dr. Brandson, framsögumaður skólamálsnefndai'innar, kom meðan á kosningum stóð; en Vilhelm Pálsson ekki fyr en daginn eftir. Þá var tekið að ræða nefndarálit skólanefnd- arinnar. I því var ráðist á séra Friðrik, og lagt til, að hann yrði rekinn frá skólanum. Við kröfðumst þess að færð væru rök að því, að séra Friðrik væri ekki hæfur kennari. En það gátu þeir ekki. Þegar þeir fóru að finna til þess, að þeir höfðu ekki náð höggstað á séra Friðrik, tóku þeir að níða skólann sjálfann. Og endirinn á þeim umræðum varð sá, að þeir fundu, að þeir voj’ii komnir í klípur. Nefndai'álitinu var þá vísað til sömu nefndarinnar aftur. Ilún gerði nú á því þær breytingar, að alt var felt burt, sem sagt hafði verið um séra Friði'ik, en 'ráðið til þess að slíta öllu’sambandi kirkju- félagsins við Wesley-skólann. Það var samþykt í einu liljóði. Við vitum að skólahugmyndin er með því að engu oiðin. En okkur dylst ekki, að þröngsýnið er orðið of mikið til þess að fólkið geti trúað kirkjufélaginu fyrir skóla. Fullyrt var, að Hjörtur Leó hefði á undan kirkjuþingi fengið loforð um kennarastöðuna. Hann var rnjög áleitinn við séra Friðrik í umræðunum. — — Enn var í einu bréfi að vestan þess getið, að séra Pétur Hjálmsson hefði eigi haft sig framrni í þessum hryggilega leik. og er það mjög sennilegt. Þeir séra Fr. H. og séra P. Hj. eru báðir héðan að heiman, og er það sæmdarauki vorri fornu frónsku kristni að láta þessa um þá getið.

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.