Nýtt kirkjublað - 01.09.1908, Page 13

Nýtt kirkjublað - 01.09.1908, Page 13
NÝTT KERKJTJBLAÐ 205 VidaIíns-safniö fær herbergi sér i Forngripasafriinu, nppi á efra lofti mentabnrsins, seni bráðum lcemur til al- menningsnota. Dánargjöf Jóns konsiils Vídalíns til landsins er miklu merkari og verðmeiri en flesta gat grunað. Fain er eigi öllu skilað sem ánafnað er landinu í erfðaskránni, frú Ilelga kona Jóns heitins sem var, varðveitir suma gripina, og koma þeir fyrst hingað að henni látinni. Almenningi var nýskeð gefinn kostur á að sjá munina sem komnir voru. Og kjörgripirnir dýrustu eru rétt allir úr kirkjum. Til þeirra var gefið — forðum daga — og j)au húsin geymdu. — — Elzt af kirkjuskrúða íslenzkum er hökullinn úr Flugu- mýrarkirkju á Forngripasafninu. Hann er með jieirri gerð (í „rómönskum stíl“) að hann er talinn að vera frá 12 öld. Sá helgur dómur hefir ])á óeíað komið á herðar Guðmundi góða, sem þar var langdvölum. — — Þar var Grundar-kaleikurinn góði úr ætt Lofts ríka, frá 15. öld. Fylgir patínan enn. Saga kaleiksins er sögð i ])essu blaði af dr. Jóni Þorkelssyni (N. Kbl. 1906, nr. 3), og er þar góðum grip að fagna heimkomnum, en leitt að hann skuli eigi geymast á hinum gamla sögustað, allra helzt er])ar er nú risin veglegasta og prýðilegasta kirkja landsins hjá Magn- úsi bónda. Þá eru og í safninu bakstursdósirnar frá Bessastöðum, sem Olafur stiftamlmaður og frú Sigríður gáfu sem legkaup peirra Magnúsar amtmanns Gíslasonar og frú Þórunnar. Starsýnast varð mönnum á prédikunarstólinn Guðbrands- naut, sem Jón heitinn náði í skrani á Sauðárkrók, og hefir sennilega bjargað úr eldinum. Guðbrandur Þorláksson smíð- aði stólinn og gaf Sjávarborgarkirkju. Skar hann á af mikilli list Krist og guðspjallamennina fjóra, tvo til hvorrar handar. Sömu skurðmyndir eru á prédikunarstól í Laufáskirkju frá alveg sama tima. Ártalið á þessum stóli Guðbrandar er 1594. Yfir Markúsarmyndinni er fangamark meistarans „G. T“. og glettilega er Markús sá líkur Guðbrandi, skarpleitur og stór- nefjaður með tjúguskegg. Mestar líkur eru ])ó af háraburð- inum að þetta sé af ráði gert. Hinir fjórir eru með hárið

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.