Nýtt kirkjublað - 01.10.1908, Síða 1
NÝTT KIRKJUBLAÐ
HALFSMÁNAÐARRIT
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING
1908.
Reykjavík, 1. oktober
tTrrrTTrrrrTTrrrrr
19. blað
laníel prófastur jjalldórsson.
Seinasti Bessastaðamaðurinn, prestvígður, er horfinn bak
við tjöldin.
Enginn Bessastaðamaður nú eftir á pallinum, nema gamli
Páll, sem alla Iifir.
Séra Daníel andaðist hjá syni sinum séra Kristni á Út-
skálum 10. f. m. og var jarðsunginn þar af séra Jens prófasti í
Görðum hinn 21.
Margar og góðar minningar vakna hjá kunnugum mönn-
um við lát séra Daníels, og þa sérstaklega nyrðra, þar sem
hann átti lengstan vinnutímann.
„Prófasturinn á Hrafnagili" var tilkomumikill gestur, þeg-
ar hann var á visitaziuferð, út með firðinum, til Grímseyjar.
Nú er svo komið í sumum prófastsdæmurn, að allir prest-
arnir eru prófastar að nafnbót, eða því sem næst. Tolla ekki
við það. Eitthvað annað fyr meir. Sátu þá tugi ára. í
Þingeyjarsýslu varð prófastsdæmið erfðaríki um hálfa öld.
Menn „fæðast" skáld, að því er mælt er, en ekki pró-
fastar, og liggur þó við að svo mætti segja um séra Daníel.
Samvizkusamari og skylduræknari, reglufastari og vand-
virkari embættismann mun vart hægt að hugsa sér. Virðu-
leikinn, ráðfestin, alvörugefnin! Og þá eigi síður lagavitið og
rithandarsnildin!
Jafnvígur var hann á báðar hendur að rita, lék sér að
*