Nýtt kirkjublað - 01.01.1909, Blaðsíða 7
tt^TT ÉTEKJTJBLAÉ)
Drottinn styrki yður með heilögum anda síuum, svo yður
auðnist að vinna verk háleitrar köllunar yðar, nafni lians til
dýrðar og hans heilögu kirkju til eftingar.
Drottinn gefi yður náð til að glæða hreina trú í landi
yðar, samkvæmt lærdómum lieilagrar ritningar og játningum
lúterskrar kirkju.
Drottinn lengi Jifdaga yðar, varðveiti heilsu yðar og gefi
yður gleðilega og arðsama embættistíð.
II. Biskup svarar 21. desember:
Bróðurkveðju yðar og blessunaróskir hefi eg fengið, og
færi yður innilegar þakkir fyrir
Ekkert er mér hjartfólgnara en það, að leitast við með
þeim rnætti er guð gefur mér að glæða trúarlífið í kirkju hans
hér á landi, á grundvelli siðbótarinnar og i sannlúterskum
frelsisanda.
Bróðurkveðja yðar er mér dýrmætur pantur þess, að vér
Drottins þjónar íslenzku kirkjunnar beggja megin hafsins umber-
um hverir aðra í kærleika, þrátt fyrir nokkurn skoðanamun.
og kappkostum að varðveita einingu andans í bandi friðarins,
vitandi það og játandi að einn er Drottinn, ein trú, ein skírn,
einn guð og faðir allra, yfir öllum, með öllum og í öllum.
Guð blessi yðar háleita starf og allra samverkamanna
yðar hjá ástkærum löndum vorum vestan hafs, til útbreiðslu
og eflingar kirkju Krists þeirra á meðal og til varðveizlu og
viðhalds feðratungu vorri og þjóðerni í hinni fjarlægu heims-
álfu.
;nn um kristindóms=frocðsluna.
Kalli úr bréfi frá presti norðanlauds.
Margt þarf umbóta við, en eitt af því marga er kristindóms-
frœðsla barna . . . Yfirleitt er það víst, að prestar landsins
ná ekki tökum á hjörtum barnanna við kristindómsfræðsluna.
Leikmönnum gengur það betur, en það er skaði, því að þá
er hætt við öfgunum. I sumar hefi ég reynt nýja aðferð við
kristindómsfræðsluna, og farið eftir leiðbeiningum frá þýzkum