Nýtt kirkjublað - 01.06.1910, Síða 2
122
NÝTT KIRKJ (JBLAÐ
|erið þjóðirnar að lœrisveinum.
Kuíli úr stólræöu á l>renning'arliátíð 1910.
.... „Farið og gerið allar þjóðirnar að lærisveinum", svo
mælti Jesús Kristur að skilnaði við lærisveina sína hina fyrstu.
Hann á þar auðvitað við löndin og þjóðirnar í heild sinni;
en hann á lika og engu síður við smærri deildir hverrar þjóð-
ar og smærri hluta af hverju landi; hann á við hvert einstakt
bygðarlag í hverju landi.
Það er sama sem hann segði á vora vísu og með vor-
um orðatiltækjum: „Farið í hverja sýslu, hverja sveit, hvert
kauptún á þessu eða hinu landi og llytjið þeim í orði og
verki fagnaðarboðskap þann, sem eg hefi kent yður, og allar
þjóðir eiga að fá hlutdeild í; gerið alla þá, sem í þessum
bygðarlögum búa, að mínum lærisveinum, og kennið þeim
að halda alt, sem eg hefi boðið yður; en — min boð felast
með sem fæstum orðum í þessu: „Þetta býð eg yður, að þér
elskið hver annan“, og „á því skulu allir þekkja, aðþéreruð
mínir lærisveinar, að þér elskist innbyrðis.“
Einhver kann nú að hugsa sem svo: „þessi Jesú orð:
„Farið og gerið þjóðirnar að lærisveinum,“ þau eru töluð til
hinna fyrstu lærisveina Jesú; þau taka því ekki til mín; enda
hefi eg enga köllun fengið til að gera neina þjóð eða neinn hluta af
neinni þjóð að Jesú lærisveinum; staða mín í lífinu er öðru vísi en
svo, að hún leyfi mér slíkt, og boð þetta mun þar að auki
mest snerta þá, sem til þess eru settir, að prédika og flytja
mönnum guðsorð."
Þessi skilningur á þessum Jesú orðum væri ekki réttur,
því að þetta boð Jesú að gera þjóðirnar að lærisveinum, það
tekur til allra kristinna manna.
Hver kristinn maður, karl og kona, er til þess kallaður,
að gera einhvern lítinn hluta af einhverri þjóð að lærisveinum
Jesú. Þó það sé ekki nema einn einasti maður, sem gerður
er að Jesú lærisveini, þá er hann hluti, þó lítill sé, af ein-
hverri þjóð.
Eitt íslenzkt barn, sem alið er upp í sönnum kristilegum
kærleika, sönnum kristilegum anda, í sönnum kristilegum dygð-
um, svo það fyrir gott og guðrækilegt uppeldi verður góður og