Nýtt kirkjublað - 01.06.1910, Qupperneq 8

Nýtt kirkjublað - 01.06.1910, Qupperneq 8
128 NÝTT KIRKJUBLAÐ Önnur meginregla hinnar sönnu fríkirkju er frjálslyndi og um- burbarlyndi gagnvart skoðunum einstakra manna eða safnaba. Þar forðast menn að njósna um sérskoðanir, sem svo oftlega gera lítinn skaða séu þær ekki gerðar að deiluefni. Sérskoð- anir er oftast bezt að leiða hjá sér, að minsta kosti þangað til menn skilja þær rétt og sjá villu þeirra eða skaðsemi. Skoðanir á trúarefnum vita menn nú, að eru eins margar og hugsandi menn. Alt er í því fólgið að kirkjan sé lifandi, því „Ljóssins arfur lýða er, — Iíf og starf hins góða“. Hin sanna, lifandi fríkirkja hefir lítinn tíma til fánýtra deilna og draumóra um þá hluti sem liggja ofar eða undir rnannlegum skilningi, svo sem útlistanir guðs „þríeinu“ veru, Jesú Krists „tvöföldu“ veru, „persónu" heilags anda, o. fl. Trúin er dauð án verhanna — samverkan allra fyrir einn, til nytsemdar liknar og gleði í anda og krafti Jesú Krists. Hin sanna fríkirkja gleymir aldrei að akur guðs ríkis hér ájörðunni — hvað sem himninum Hður — er stór og hvítur til uppskeru. Hingað til eru handtök kirkju vorrar teljandi sem heildar —, en bráðum koma betri dagar! gíra Jorvaldur d jpel kveður £ Qlaf son sinn tœpra þriggja vetra. Áður en héðan verða út bornar þessar stuttu fjalir, sem hafa að geyma líkamsleifar þess, sem þótt lítill væri var stór- um hugþekkur sumum af oss seni hér erum nú stödd, vilda eg talað hafa fáein orð. En yður, aðkomnu vini mína, bið eg að virða vel, að eg, þótt eg eigi að heita prestur, ætla mér í þetta sinn ekki að tala sem pre-tur, heldur annaðhvort sem faðir eða húsráðandi á heimili, þar sem eg veit að eru marg- ir aðrir en eg, er nú telja skarð fyrir skildi, þar sem úr rninum flokki er fallinn sá, er ekki að eins að mínum, ef til vill vil- halla dómi, þótti hinn líklegasti til að að verja drengilega rúm sitt, og sem mér hlaut að vera því kærari, sem mér, hjá jafn-

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.