Nýtt kirkjublað - 01.06.1910, Page 9

Nýtt kirkjublað - 01.06.1910, Page 9
^NÝTT KIRKJUBLAÐ 129 ungum, virtist votta fyrir mörgu því, er gat gefiö mér hinar beztu vonir um, að hann mundi ekki ómaklega bera nafn þess góða og mikilhæfa manns, er hann var eftir heitinn, nafn móðurbróður míns síra Olafs Þorvaldssonar. En þær vonir áttu ekki að rætast, og læt eg mér alls ekki til hugar koma að vera óánægður með þá ráðstöfun þess líknsama föðurins, er öllu ræður vel fyrir öll börnin sín, jafnt hin eldri sem hin yngri, miklu fremur finn eg mér skylt að þakka hinum algóða gjafaranum allrar góðrar og fullkominn- ar gjafar fyrir þessa dýrmætu gjöf, er eg hafði af honum þegið, þótt eg ætti hennar svo skamma stund að njóta; og get eg vel látið mér í hug koma, að þetta sé orðið til þess að gefa mér skýra bendingu um það, hve vandgætt sé til um jafndýrmætar gjafir og góð börn eru, og það því vandgættara, sem í þeim er meira og betra mannsefni, og að því hafi mér ver- ið það langhollast, að losast við afarþunga ábju-gð sem á þvi er, að vera leiðtogi ungrar mikilhæfrar sálar á veg lifsins. Það eru nú rúm 10 ár siðan hið fyrsta lika tilfelli þessu hefir borið mér að höndum; þá var eg það óherknari en nú, að eg hlaut að kveðja vin og granna minn*) til þess að fela í skaut hinnar hljóðlegu hvílu það barnið mitt, er mér hefir þótt ynnilegast allra,**) og eg því, ef til vill, hafði alt of fasl bundið huga minn og hjarta við. Þenna vin minn hafði eg beðið þess, að halda enga ræðu yfir moldum dóttur minnar, en hann fann sér skylt að rifja upp fyrir mér þessi orð, er ávalt eru sönn: Drottinn gaf, drotlinn tók, sé nafnið drottins vegsamað! Eggetnúekki vel um það borið, hvort orð vinar mins út af þessu efni hafi verið svo áhrifamikil, að eg fyrir þau hafi fengið þá stillingu, að hafa getað nokkurn veginn rólegur tekið missi barna minna, eða það sé hitt, að sá hinn fyrsti sári missir hafi gjört mig það tilfinningarsljórri en eg þá var; en slíkt er alls ekki ó- sennilegt, þar sem það er sannreynt, þegar um líkamlegan sársauka er að ræða, að ákaílega sterk, snögg, fyrsta sársauka- tilfinningin getur stórum dregið úr ofurmegni langvinnra kvala, *) Sívu Svt'inn Skúluson ú Stuðuvbukku. **) Gyðviðuv, ('. ú Reynivöllum 1876, dúin 29. apv. 1882. En Ó- Jafuv vuv fœdduv 5. okt. 1889, dúinn 27. júnf 1892.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.