Nýtt kirkjublað - 01.06.1910, Side 12
132 NÝTT KIRKJUBLAÐ
Utan-þjóðkirkjusöfnuður Gaulverjabæjar,
Hann var ekki nema sóknin og hún öll. Nokkrir bæir í
Villingaholtssókn eru í Gaulverjabæjarhrepp, og ])eir vilja líka
vera saman um kirkjulega félagsskapinn og 90—100 menn úr
Stokkseyrarsókn vilja ganga inn í utan.þjóðkirkjusöfnuðinn.
Þetta hefir orðið til þess að leyft hefir verið að safnaðarsvæð-
ið nái líka yfir Villingaholts og Stokkseyrarsóknir.
Einkennilegir samningar mega það heita ef svo er sem
hermt er, að forstöðumaðurinn í utan-þjóðkirkjusöfnuðinum á
ekki að hafa föst árslaun frá fardögum, heldur fær hann nef-
skattinn sama og lögboðinn er í þjóðkirkjunni af uppkomnum
safnaðarlimun). Væntanlega hefir safnaðarféiagsstjórnin innheimt-
una. 1 sjálfri Gaulverjabæjarsókn eru c. 260 gjaldendur, hvað
sem svo bætist við.
Svipað mun vera að segja af fríkirkjunni í Reyðarfirði.
Mest um það hugsað að fá prestsþjónustuna sem ódýrasta.
Lánstraust kirkna.
Það er alveg farið, nema úr sé bætt. Þegar minst varir
getur allur gjaldstofninn verið undan genginn. Og húsið
stendur mannlaust og teknalaust, í stórri skuld.
Síra Páll heitinn í Þingmúla veðsetti Wathne kirkjuna þar,
hérna á árunum, og Pétur biskup komst í standandi vandræði
yfir tiltækinu. Og ekki yrðu það minni vandræði fyrir Al-
mennan kirkjusjóð að sitja upp með yfirgefið kirkju-húsið.
Dæmin koma á daginn: Nú fer — segjum — '/)o
gjaldskyldum mönnum Stokkseyrarsóknar inn í utan-þjóðkirkju-
söfnuðinn í Gaulverjabæ. En það gætu alveg eins hafa ver-
ið °/10. Stokkseyrarkirkja er í skuld við Kirkjusjóð, en engin
lög munu vei'a til þess, að halda þessu broti, sem yfirgefur
sinn söfnuð, til að leysa út eða ábyrgjast 1/10 hluta skuldarinnar.
Þegar löggjöfin hafði lagt Gaulverjabæjarsókn undir Stokks-
eyrarprest, var ómögulegt að meina Stokkseyrarsóknarmönn-
um að vera í utan-þjóðkirkjufélagi við Gaulverja með for-
stöðumann í Bæ. Og þangað geta allir gjaldendur Stokkseyr-
arkirkju sópast — nema vitanlega presturinn sjálfur — efsvo
horfir við.
Þetta er alvarlegt mál. Og þyngsta áhyggjuefnið er það
fyrir söfnuðina sjálfa, sem eru að koma sér upp kirkjum og