Nýtt kirkjublað - 01.06.1910, Blaðsíða 13
NÝTT KIRKJUBLAB _____________133
þurfa að taka lán, að geta búið svo um, að stærra eða
smærra brot af safnaðarfélögunum geti eigi, er minst varir,
hlaupist á brott frá skuldbindingunum, sem þeir allir fyrir einn
og einn fyrir alla hafa á sig tekið með kirkjuskuldinni.
Fordæmin glögg og góð frá ýmsum öðrum félagsskap.
En vísast þarf laganýmæli til að ganga tryggilega frá þessu.
Heilsuhælið.
Það varð ársgamalt í lok maímánaðar, frá vígsluhátíðinni
að telja. Og miklar og góðar gjafir fekk það nú fyrir skemstu,
og fái það jafnmiklar afmælisgiafir áfram er því vel borgið.
Gjafirnar voru frá Geiri kaupmanni Zoega og konu hans
og börnum og frá honum og samerfingjum eftii' Kristján lækni
Jónsson, er andaðist í Clinton í vetur. Ein gáfu hjónin 5540
kr. til að búa út 10 einbýlisherbergi á hælinu svo vel og
vandað sem verða má, en 10,000 kr. gáfu systkin og mág-
systkin Kristjáns heitins læknis, og verður vöxtunum varið
til að gefa með sjúkling á hælinu. Þar er komið fyrsta frí-
plássið, og geymir það um ókonmar aldir minning bezta drengs,
sem úti í löndum varð þjóð sinni til hins mesta sóma.
„Kristiánsstoifa" verður herbergið hans látið heita, þar sem
hann vinnur áfram sitt læknisstarf. Og minnisvarðinn bezti
er fenginn.
Prédikanir i veraldlegu blaði.
Nýung hefir það þótt vestra hjá löndum, er Heimskringla
fór að flytja prédikanir eftir síra Friðrik Bergmann. Prédik-
anirnar verða 12 að tölu. Prentaðar hvað eftir að fluttar eru,
í vetur sem leið. Vonandi verður bók úr því.
Það er mjög gleðilegt tímans tákn, fari veraldleg blöð,
meir en áður, að sinna kristindómsmálum. Og það lánast,
þegar flytjendur kristindómsins ná hugsun og skilningi nútíð-
armanna.
Og þá væru ekki kirkjurnar lengur tómar hjá oss, að
minsta kosti ekki í fjölmenninu.
Tsekifærisræður.
Einhver ný tnigsun til aukins skilnings á einhverju atriði
er altaf svo skemtileg: