Nýtt kirkjublað - 15.02.1911, Síða 2

Nýtt kirkjublað - 15.02.1911, Síða 2
4& NÝTT KIEK,TTJBLAÍ) uð dönskulegt —, þá spurði hann mig: „Er De vis paa at íslænderne er modne til Selvstyre?" [Eruð þér viss um það. að Islendingar séu orðnir færir um að eiga með sig sjálfir?] Eg varð reið og sagði, að í öllu falli gætu þeir betur stjórn- að, en sá sem ekkert þekti til, aldrei hefði verið heima og ekki skildi eitt íslenskt orð. En einmitt af þvi að eg var svo alveg viss um að nú yrði alt gott, tek eg mér svo nærri, að hver skuli vera uppi á móti öðrum. — Kaupm.h. Mouradsvej 19., 14. apríl 1905. fjjfíra Igniljótur scm prestur. Agætlega hefir dr. B. M. Olsen lýst æfistarfi síra Arn- Ijóts Olafssonar, einkum ritstörfum hans og þingmensku, og nokkuð sjálfum honum. Er það sönn lýsing. (Andvari 1906). Eg vil reyna að bæta dálitlu við, af því að eg held að eg þekki síra Arnljót ílestum betur, því svo mátti heita að eg væri heimamaður hans í 23 ár. (1881—1904.) Eg vil einkum lýsa honum sem presti. Margur hefir sagt sem svo: „Hann var mesti lærdómsmaður, ritsnillingur, mælsku- maður og þingskörungur. En atkvæðalitill prestur var hann.“ Rétt er nú þetta alt, nema seinasta setningin. Það er óhætt að kalla hann merkisprest. Eg var altaf við messu hjá hon- um þegar eg var á heimili hans, svo að ræður hans eru mér vel kunnar. Hann prédikaði oftast blaðalaust, talaði hægt, en skýrt og hátt. Eg hefi líka heyrt ræður fjölda presta utan- lands og innan, og lesið þó enn þá fleiri. Og eg hefi ekki betur vit á, en að ræður hans þóttu mér einhverjar þær spak- legustu og andríkustu, sem eg hefi heyrt og lesið. Og oft voru þær mjög innilegar. Eg held að stólræður hans hafi ekki staðið á baki þingræðum hans að snild og fegurð, speki og andríki. Sumum þótti nú ekki mikið í stólræður hans varið. Þótti þeim þær veraldlegar og söknuðu þar ýmsra atriða, sem prest- ar eru vanir að kenna. Og var það von. Ræður hans voru í rauninni talsvert óh'kar vanalegum kirkjuræðum. Barna-

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.