Nýtt kirkjublað - 01.10.1911, Page 9
NÝTT KIRKJUBLAÐ
225
lingsins, gagnstætt sifelduni umskiftum í Iifnaðarháttunum og
stöðugu flakki frá einu leiguhúsinu til annars. Það þarf að
tæma fátækrahverfin í borgunum, og hluta í sundur hin miklu
og ofstóru höfuðhól.
Vér verðum að venja oss við það, að hræðast ekki um-
bætur, jafnvel gjörbreytingar, ef þær eru bygðar á einskæru
réttlæti. En hálfverkin, skóbótaskiftin — það eru þau sem
valda ógæfu og gremju.
Höfum það hugfast, að komi ekki umbætur, þá koma
byltingar. — — —
Lauslega þýtt af B. Þ. Grönclal.
Heilsuhoslið d Sífílstöðum.
Mikil og fögur er breytingin á Vífilstöðum umhverfis hús-
ið. Allir hafa verið sammála um það að húsið sjálft væri
hið vandaðasta og fegursta að innan og utan, en margir hafa
kvartað undan því að bert og nakið væri í kring. Nú hefir
mikið verið grætt upp í sumar, næst húsinu, og ekki svo h'tið
plantað af trjám. Bara ef þau lifa, séu ekki ofgömul til ný-
græðslu. Vantar nú einkum skjólgarða til meiri útgræðslu.
En það kemur.
Þetta blað hefir oft minst á minningarspjöldin, að gjafir
komi til heilsuhælisins i líkkransa stað, og að fénu, því sé ein-
mitt varið til að gera vistlegra kringum hælið, og þessum
bletti sé nú bætt lyngrifið á Reykjanesskaga að fornu og nýju.
Nú geta allir gefendur séð fljótt og vel ávöxt gjafa sinna.
Og landbótin er áreiðanlega besta stoðin undir heilsubót gest-
anna á hælinu.
Nokkuð umtalsefni varð um það í blöðunum í vor, að vistin
þar væri of dýr. Og mundu allir taka hjartanlega undir það
að óska þess að hún væri ódýrari. En til þess þarf hælinu
að gefast svo miklu meira fé. A landssjóðinn má ekki leggja
það. En sýnt var það og sannað að vistin á Vífilstöðum er
svo ódýr sem framast má vænta, og ódýrari en á flestum öðr-
um slíkum hælurn.