Nýtt kirkjublað - 15.01.1914, Blaðsíða 1
NÝTT KIRKJUBLAÐ
HÁLFSMÁNAÐARRIT
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING
1914
Reykjavik, 15. janúar
2. blað
IjárhagsYoði fgrir kirkjur vorar.
Sóknargialdalögin hafa Ieitt sóknarnefndir og söfnuði í
meinlega freistni.
Eftir 6. gr. þeirra Iaga fellur niður hjá safnaðarkirkjum
niðurjöfnun kostnaðar við kirkjusöng og kostnaðar við kirkju-
garða og fleira smávœgilegra, sem áður var að lögum sérstök
niðurjöfnun á. Greiðist nú allur sá kostnaður beint úr sjóði
safnaðarkirknanna af þessum eina tekjustofni, nefskattinum,
sem í nauðsyn má auka, er fullhækkaður þykir, með niður-
jöfnun eftir efnum og ástæðum.
Þessi breyting var gerð til hagræðis fyrir innheimtuna,
en sjálfgefið að hækka þurfti þá kirkjugjaldið, þar sem kirkj-
an er ekki því efnaðri. En altof víða hefir það eigi gert verið.
Stendur fjárhagsvoðinn mest frá sönggjaldinu, sem er á hverju
ári. Fer gjald það víðast hækkandi, og mun sjaldnast ofborg-
að, en kirkjan þolir eigi bótalaust að greiða '/s* Va °S 8/r af
lögboðnum árstekjum sfnum fyrir söng.
Menn vilja nú fá traustari og svipfegri kirkjur, og varla
úr öðru en steini, og með gætilegri fjárstjórn getur sú breyt-
ing orðið á nokkrum tugum ára. En nú sýnir sig afleiðing
þessarar misbrúkunar á sóknargjaldalögunum hjá fjölda mörg-
um safnaðarkirkjum, að tekið er alveg fyrir alla fjársöfnun
siðustu árin.
Dæmin eru færri frá kirkjugarðakostnaði, en þó nokkur
og slæm í stað og stað. Það er lofsvert að koma upp stein-
steypugörðum um grafreiti, en eigi tjáir að skila næstu kyn-
slóðinni kirkjuhúsinu föllnu og félausu. — Næsta kynslóðin,
sem einmitt vill hafa enn miklu meiri not af húsinu.