Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1928, Page 4
T í M A R I T
IÐN AÐARMAN N A
Minningargreinar um Gísla Guðmundsson
Minningarorð varaformanns.
Það var mörgum sár harmafregn, þegar frjettist
Iát Gísla Guðmundssonar gerlafræðings, formanns
Iðnaðarmannafjelagsins f Reykjavík; hann sem á
svo stuttum tíma var búinn að eignast svo mikið
álit fyrir áhuga og víðsýni í þarfir iðnaðarins.
Því varð söknuðurinn tilfinnanlegri hjá þeim,
sem þektu hann vel, þeim fanst hann eiga svo
mikið ógert, af sínum góðu og göfugu hugsjónum,
og því vandfylt það öndvegi, sem hann skipaði.
Hann mátti teljast þar með allra framsýnustu
manndómsmönnum til orða og athafna.
Hann var kosinn formaður Iðnaðarmannafjelagins
í Reykjavík 24. febrúar 1925, hann var því tæp
fjögur ár formaður þess. Mjer var það vel kunnugt,
þegar Gísli sál. settist fyrst í það formannssæti,
fjelags með svo margþættuð skylduslörf að hann
fann til djúprar ábyrgðar, og að því fylgdi oft
meiri vandi en vegsemd. En Gísli sál. sýndi þar
óvenju fljótt sína miklu og góðu hæfilegleika, sem
forseti. Honum var vel ljóst, hvaða gildi góð iðn-
aðarstjett er hverju Iandi, hún sem hefur fram-
kvæmdarvald á öllu því verklega, og geymir mann-
dómsverkin um ár og aldir, komandi kynslóð til
ævarandi minningar og fyrirmyndar. Hann hafði
hvað mest yndi af að grafa úr gleymskunnar djúpi
minningarathafnir liðna tímans, færa þær í nýjan
búning, sem gaf þeim gildi fyrir framtíðina; þar
misti okkar ungi óþroskaði iðnaður ekki hvað
minst við fráíall hans.
Eitt af hans mörgu og góðu áhugamálum var
sfofnun »Tímarits Iðnaðarmanna«, hann vissi vel
hvað gott málgagn getur verið fyrir iðnaðarstjettina,
þar kæmi best í ljós hugsun og áhugi iðnaðar-
manna, sem geyma mundi hróður þeirra, sem þar ljetu
til sín heyra. Hann var líka ritstjóri þess frá byrjun og
hefði efalaust orðið lengi, ef líf og kraftar hefðu
leyft. Nú er það okkar sem eflir lifum, að taka
við því starfi, og leggja þar alla alúð við, að það
verði sem veglegast. Það er máske besta þakk-
lætið, sem við getum sýnt hinum fráfallna stjettar-
bróður. — Já, hann átti manndáð og þor, og hann
sá hvar lágu menningarspor. Það sýndi hann með
sínum góða vilja, og göfuga starfi.
Já, vinur! Haf þökk fyrir alt!
Far þú vel, meira að starfa guðs um geim.
Jón Halldórsson.
Minning á fjelagsfundi.
A fundi sem haldinn var í Iðnaðarmannafjelagi
Reykjavíkur fimtudaginn 11. október síðast liðinn,
setti varaformaður fundinn og mintist með nokkr-
um orðum á fráfall hins ástsæla formanns fjelags-
ins Gísla sál. Guðmundssonar gerlafræðings, og
bar öllum fjelögunum kveðju frá honum, sem hann
hafði beðið varaformann fyrir, við síðustu samfundi
þeirra. Að því loknu bað varaform. alla fundar-
menn að standa upp í þakklætis- og virðingarskini
fyrir alt það góða sem hann hafði gert iðnaðar-
stjettinni. Að því búnu, gekk einn fjelagsmanna
fram, og las upp eftirfarandi kvæði:
Farinn er úr formannssæti
Fjelagsmaður vor hinn besti.
Drúpir rekka hópur hljóður,
Himinn fagnar mætum gesti.
Geymast fyrir góða kynning
Glöggar minjar sæmdarverka.
Aldrei hverfur endurminning
Ævistarfsins góða og merka.
Minning Gísla gerlafræðings
Geislum slær á auða rúmið.
Vinarþel hans þáttinn lagði
Þráðbeint yfir saknaðshúmið.
Kveður oss til dugs og dáða,
Drengskapar og sameiningar.
Bendir oss í bróðuranda,
Brautina til þjóðmenningar.
Hafðu Gísli, hjartans þakkir!
Hófi og stilling gæddur varstu.
Með þeim vopnum vanstu störfin,
Virðing allra af hólmi barstu.
Vjer hin sömu vopn oss kjósum
Vinur kær — í nýtu starfi.
Megi heill og gifta’ oss gefa
Geðprýðina þína að aifi.
Á. J.
Helstu æviatriði.
Gísli Guðmundsson var fæddur 6. júlí 1884 að
Hvamsvík í Kjós. Foreldrar hans voru hjónin Jak-
obína Jakobsdóttir frá Valdastöðum og Guðmund-
[ 66 ]