Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1928, Blaðsíða 18
T í M A R I T
IÐNAÐARMANNA
Árið 1923 er samþykt Merki fyrir fjelagið og
tekið til notkunar.
Árlegt iðgjald meðlimanna er nú 75 kr. Nema
sjóðeignir fjelagsins alls um 60.000 kr. Meðlima-
fjöldi 110. Stjórn fjelagsins skipa nú þessir 7 menn:
Hallgr. ]ónsson form., Ágúst B. Quðmundsson
ritari, Skúli Sívertsen fjehirðir, og meðstjórnendur
þeir: Júlíus Kr. Olafsson, G. ]. Fossberg, Hafliði
Jónsson og Þorsteinn Árnason. «
Hallgr. Jónsson.
Iðnbókasafnið.
Það eru Iiðin full 3 ár frá stofnun Iðnbóka-
safnsins, sem myndað var af bókasöfnum Iðnaðar-
mannafjelagsins, Iðnfræðafjelagsins og Verkfræð-
ingafjelagsins. Þessi tími hefur verið notaður til
þess að raða safninu, skrásetja það og binda. Er
nú svo komið, að það er alt skrásett, og um 500
bindi innbundin. Töluvert er þó óbundið enn þá,
en það smá-minkar, því stöðugt er verið að binda
og það töluvert meira en við bætist af bókum og
nýjum tímaritum á ári hverju.
Safnið fær árlega töluvert af tímarítum ið- og
iðnfræðislegs efnis, aðallega í skiftum fyrir Tímarit
Verkfræðingafjelags íslands, og Tímarit Iðnaðar-
manna. Einnig nokkur sem framhald af skiftum við
Sindra. Auk þess hafa einstakir menn gefið safninu
talsvert af bókum og tímaritum, og sumum þeirra
fágætum og verðmætum. T. d. hefur Th. Krabbe
vitamálastjóri gefið því á annað hundrað bindi af
eldri og yngri árgöngum af verkfræðilegum og iðn-
fræðilegum tímaritum, og mikið af því innbundið. Val-
geir Björnsson bæjarverkfræðingur gaf því talsvert
af óinnbundnum tímaritum, Steingrímur ]ónsson
rafmagnstjóri nokkrar bækur og biskupinn, Dr.
]ón Helgason merkilegt rit um »astronomisku«
klukkuna í Dómkirkjunni í Lundi í Svíþjóð, og
nokkrir fleiri minni gjafir. Af þeim tímaritum, sem
stöðugt koma ný, og liggja frammi í safninu, má
nefna þessi:
íslensk: Tímarít Verkfræðingafjelags íslands, Tíma-
rit Iðnaðarmanna, Skírnir, Eimreiðin, Iðunn,
Búnaðarritið, Ægir, Verslunartíðindin, Freyr,
Hagtíðindin, Hagskýrslur, Veðráttan o. fl.
Dönsk: Ingeniören, Dansk Vejtidskrift, Tidskrift
for Inpustri, Elektro-teknikeren, Architekten,
Den tekniske Forenings Tidskrift.
Norsk: Norges Haandverk, Teknisk Ukeblad,
]ernindustri.
Sænsk: Teknisk Tidskrift.
Finsk: Tekniska FöreningensiFinlandFörhandlingar.
Tímarit á þýzku: Ingenieur Zeitschrift, Siemens
Zeitschrift.
Tímarit á frönsku: Procés-Verbal, Memoires des
Ingenieurs Civils.
Tímarit á ensku: Compressed Air Magazine, Power,
Engineering Procers, Proceedings of the physical
Society, Proceeding of the American Society of
Civil Engineers, ]ournal of the Franklin Institute.
Safnið er lítið notað enn þá og mætti vera meir.
Það er opið á mánudögum og iaugardögum kl.
6—7 síðdegis, og þá bókavörður safnsins (Sigurður
Sigurðsson kennari) ávalt viðstaddur. Rjett til að
nota safnið, sitja í því og lesa nýjustu tímaritin og
fá innbundin tímarit og bækur lánuð heim hafa
allir fjelagsmenn Iðnaðarmannafjelagsins og Verk-
fræðingafjelagsins, og kennarar Iðnskólans. Einnig
geta nemendur Iðnskólans fengið þar bækur að
láni, en þó með því skilyrði, að einhver af að-
standendum safnsins ábyrgist bækurnar fyrir þá.
]eg rita þessar línur til þess að benda fjelags-
mönnum á, að óhætt er að fara að nota sjer það
meira en verið hefur. Reglur um safnið og notkun
þess geta menn fengið hjá bókaverði.
Ef einhver fjelagsmanna hefur augastað á sjer-
stöku tímariti eða ritum, sem hann teldi æskilegt
að útvegað yrði handa safninu, mun tillaga um það
verða tekin til athugunar af stjórnarnefnd safnsins,
en í henni eru Árni Pálsson verkfræðingur og
undirritaður.
Helgi Hermann.
Iðnaðarmenn!
Útbreiðið Tímarit Iðnaðarmanna, því meira sem
það eflist, þess fjölbreyttara getur það orðið að
efni til og þess meira virði fyrir Iðnaðarstéttina.
Árgangurinn kostar að eins 4 krónur auk lítils-
háttar innheimtukostnaðar.
Innheimtu- og afgreiðslumaður:
Jón Uíðis, Hverfisgötu 40, Rvík. Sími 1222,
tekur á móti pöntunum.
Prentsmiðjan Gutenberg h.f. — 1928.
I 80 ]