Tímarit iðnaðarmanna


Tímarit iðnaðarmanna - 20.12.1941, Side 54

Tímarit iðnaðarmanna - 20.12.1941, Side 54
Jólahefti Tímarits iðnaðarmanna 1941 Ingólfur Arnarson landnámsmaður Líkneski Ingólfs Arnarsonar á Arnarhóli í Reykjavik, eftir Einar Jónsson, er reist af Iðn- aðarmannafélaginu í Reykjavík. Málið átti sér langan aðdraganda. Sveinbjörn Hallgrímsson og Magnús Grímsson vöktu máls á því um miðja síðustu öld að reisa þyrfti fyrsta landnámsmanni vorum einhverskonar minnis- merki. Jón Árnason bókavörður lireyfði mál- inu 1868. Sigurður málari vildi, „að gjört yrði eittlivað íþróttalegt minnismerki um Ingólf á Arnarhóli“. Halldór Friðriksson hreyfði því í „Þjóðólfi“, að reisa skyldi hús yfir söfnin i Reykjavík til minningar um landnám Ingólfs, og skyldi verkinu lolcið fyrir þúsund ára afmæli íslands. Árið eftir, eða 12. ágúst 1864, birtist i sama blaði grein, sem talin er að vera eftir Sigurð málara, þar sem lagt var til, að reisa líkneski af Ingólfi á Austurvelli. Kemur þar fyrst fram liugmyndin um líkneski Ingólfs. Sið- ar benti Jón Árnason á að reisa það á Arnar- hóli, og stingur upp á að samskot verði liafin um land allt til framkvæmda. Eftir þetta var oft talað um Ingólfsmyndina, en ekkert varð úr framkvæmdum fyr en Iðnaðarmannafélagið tók málið að sér. 17. sept. 1906 flutti Jón Hall- dórsson málið á fundi. Einar Jónsson, mynd- höggvari, var þá kominn á sjónarsviðið sem mikill listamaður og farinn að gera drög að likneski Ingólfs. Nefnd var kosin, fé veitt úr félagssjóði og fjáröflun hafin. En margir voru erfiðleikarnir og þó verst sundurlyndi manua um málið. Það var fyrst i jan. 1923, að hafizt var handa fyrir alvöru að steypa líkneskið og undirbúa staðinn á Arnarhóli. 24. febr. 1924 kl. 3 e. li. var líkneski Ingólfs afhjúpað að viðstöddum miklum mannfjölda. Formaður Iðnaðarmannafélagsins afhenti lands- stjórninni það sem gjöf frá Iðnaðarmannafé- laginu, en forsætisráðherra þakkaði. Um kvöld- ið liélt Iðnaðarmannafélagið mikla veizlu í liúsi sinu. Ingólfsmyndin koslaði 40 þús. kr. Lang'- mestur hluti þess fjár var greiddur úr sjóði félagsins. 52

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.