Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1947, Side 10
(ðnaðarritið 9. - 10. XX. 1947
Endurskoðendur reikninga:
Guðmundur Magnússon, Akureyri,
Magnús Magnússon, Vestmannaeyjum.
J. Bjarna Péturssyni, var íalið að kalla saman 1.
íundinn.
3. Útgáfa handbóka.
Stjórn Landssambandsins heíur ekki ennþá tekist að
fá menn til Þess að semja eða þýða handbækur, og
handrit það, um logsuöu og rafsuöu, er var i smíðum er
síðasta skýrsla Sambandsstjórnar var samin, er ekki
ennþá komið í hendur stjórnarinnar, og veldur það,
að ekki hefur tekist að fá hentug myndamót. Verður
því að teikna myndirnar hér og hefur það tafið verk-
ið.
Gunnar Vagnsson, sem ætlað var það hlutverk meðal
annars, að þýða erlendar handbækur, fór úr þjónustu
Sambandsins áður en að því kom, og hefur Sambands-
stjórninni ekki tekist að fá mann í hans stað.
Eins og kunnugt er, fekk Landssambandið heimild
til þess að þýða á íslenzku, þær handbækur, sem Tekno-
logisk Institut í Kaupmannahöfn hefur gefið út. Skrjf-
stofan hefur fengið sýnishorn af þeim öllum og aug-
lýst þær í Iðnaðarritinu. Fjöldi iðnaðarmanna hefur
hagnýtt sér þetta og hefir skrifstofan útvegað þeim
yfir 200 bækur.
Skrifstofan hefur einnig fengið skrá yfir sænskar
handbækur fyrir iðnaðarmenn og getur útvegað þær.
Jf. Bókhaldsform.
Iðnþingið 1945, fól Sambandsstjórninni að láta útbúa
bókhaldskerfi fyrir iðnaðarmenn. Gunnar Vagnsson, við-
skiptafræðingur, vann að þessu, og liggur þetta til-
búið í handriti, en þar sem verið er að semja kennslubók
í bókhaldi til afnota fyrir iðnskólana, hefur þótt rétt-
ara að bíða eftir henni, svo hægt sé að samræma hana
og bókhaldskerfið, það sem Gunnar samdi, ef þess gerist
þörf. Að sjálfsögðu verður þessu hraðað eins og ástæður
leyfa.
5. Lagabreytingar.
Á þinginu 1945, kom fram breytingartillaga við 12.
grein Sambandslaganna frá Iðnaðarmannafélaginu á
Akranesi. Vegna þess hve tillagan kom seint fram var
ekki hægt að ræða hana á þinginu en útaf þessu hefur
stjórn Landssambandsins komið sér saman um víð-
tækari breytingar á lögum Sambandsins, og hefur öll-
um Sambandsfélögunum verið sendar þær tillögur,
ásamt breytingartillögunni frá Iðnaðarmannafélaginu á
Akranesi.
6. Námstími Ijósmyndara.
Á 8. iðnþinginu, kom erindi frá Ljósmyndarafélagi
Islands, þar sem farið var fram á að lengja námstíma
ljósmyndara úr 3 árum í 4 ár, og jnáli þessu vísað til
stjórnar Landssambandsins.
Eins og kunnugt er, lá fyrir síðasta Alþingi frum-
varp til nýrra iðnfræðslulaga. Fyr en séð verður hvernig
því reiðir af telur stjórn Landssambandsins sér ekki
fært að bera fram breytingartillögur á reglugerð um
iðnaðarnám, og leggur því til að erindi Ljósmyndara-
félags íslands sé frestað þar til að vitað er um afgreiðslu
iðnfræðslulaganna á Alþingi.
7. Sameiginlegt merki fyrir iönaöarmenn.
Kosin var nefnd á 8. Iðnþinginu, er gera skyldi til-
lögur um sameiginlegt merki fyrir iðnaðarmenn, og
hefur hún lofað að skila áliti á þessu þingi.
8. Fjárveitingar ríkisins til iönaöarmála.
Á fjárlögum 1946 voru fjárframlög til iðnaðarmála
sem hér segir:
a. Til Landssambands iðnaðarmanna .... kr. 50.000.00
b. Til Iönlánasjóðs.....................— 65.000.00
c. Til byggingar iðnskólahúss í Reykjavík — 300.000.00
d. Til iðnskólahalds.......... ......... — 200.000.00
e. Til framhaldsnáms erlendis...........— 30.000.00
Samtals kr. 645.000.00
Á fjárlögum fyrir árið 1947, eru fjárframlög til iðn-
aðarmála þessi:
a. Til Landssambands iðnaðarmanna .... kr. 50.000.00
b. Til iðnlánasjóðs ................... — 300.000.00
c. Til byggingar iðnskólahúss í Reykjavík ■— 255.000.00
d. Til iðnskólahalds...................— 250.000.00
e. Til framhaldsnáms erlendis..........— 30.000.00
Samtals kr. 885.000.00
9. Spjaldskrá yfir iðnaðarmenn.
Skrásettir eru nú 2639 iðnaðarmenn í 60 iðngreinum.
Ætlunin var að Gunnar Vagnsson ynni m. a. að þessu
máli, en starfsemi hans hjá Landssambandinu varð
lítil vegna. Byggingaráðstefnunnar, svo að ekki hefir
verið hægt að sinna því betur.
10. Iðnfrceðsla.
Eins og kunnugt er var frumvarp til laga um iðn-
fræðslu ýtarlega rætt á Iðnþinginu 1945. Kosin var
5 manna nefnd er fylgjast skyldi með meðferð máls-
ins á Alþingi.
Stjórn Landssambandsins sendi öllum Sambandsfélög-
unum frumvarpið til umsagnar, og komu frá þeirra
hálfu nokkuð margar breytingartillögur.
104