Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1947, Qupperneq 24
[ðnaðarritið 9. - 10. XX. 1947
manna er starfa að listiðnaði eða hafa aðstöðu til þess
að styrkja hann á einhvern hátt.
7. Níunda Iðnþing Islendinga getur ekki mælt með
neinum undanþágum í Ijósmyndaiðninni fyrir þá menn
sem telja sig hafa stundað nám í iðninni erlendis, þar
sem tími þeirra er svo stuttur (1-6 mánuðir), að útilokað
er að viðhlítandi árangur geti orðið af slíku námi. Auk
þess er iðnlöggjöfin skýr og ótvíræð, og ljósmyndasmíð-
in hefur verið rekin í fullu samræmi við núgildandi iðn-
löggjöf af fullgildum réttindamönnum.
Undanþágur fyrir áhugamenn (amatöra) getur þingið
heldur ekki fallist á, þar sem það væri á engan hátt í
samræmi við þá skoðun og fyrri ákvarðanir að ein-
ungis lærðir kunnáttumenn framleiði fyrir þjóðina.
8. Níunda Iðnþing Islendinga hefur rætt og athugað
ítarlega hvort unnt sé að taka upp annað fyrirkomulag
við iðnaðarframkvæmdir, en prósentuvísa álagningu, á
öðrum tilkostnaði verktaka, en hefur að svo komnu ekki
fundið aðra framkvæmanlega leið.
Fjármál.
Níunda Iðnþing Islendinga litur svo á að þar sem iðn-
ráðin í landinu eru til orðin við ákvörðun rikisvaldsins,
beri ríkissjóði að standa undir kostnaði við starfsemi
þeirra.
Kostnaður af starfsemi Iðnráðsins í Reykjavík hefur
verið greiddur úr ríkissjóði, og ættu því iðnráðin ann-
arsstaðar á landinu að njóta sömu kjara.
Er því skorað á ríkisstjórnina að hún hlutist til um,
að á næstu fjárlögum verði ætlað til iðnráðanna utan
Reykjavíkur, kr. 3000.00 þrjú þúsund krónur.
Níunda Iðnþing Islendinga skorar á ríkisstjórnina, að
fela stjórn Landssambands iðnaðarmanna að gera tillögur
um úthlutun á styrk þeim, sem á fjárlögum er veittur
iðnaðarmönnum til framhaldsnáms erlendis.
(1 sambandi við þessa tillögu er rétt .að geta þess, að
ríkisstjórnin hefur nú í haust sent Landssambandinu til
athugunar umsóknir þær er bárust um styrk þennan).
Níunda Iðnþing íslendinga skorar á Alþingi, að sam-
þykkja lög um stofnun sjálfstæðs iðnbanka með minnst
fimm miljóna króna framlagi nú þegar.
Þegar bankinn tekur til starfa, taki hann við stjórn
iðnlánasjóðs en þangað til verði sjóðurinn í vörslu Út-
vegsbankans, eins og hann hefir verið frá byrjun.
Kosin var 3ja manna nefnd, er ásamt stjórn Landssam-
bandsins vinni að framgangi þessara mála milli þinga.
1 nefndina voru kosnir:
Þorsteinn Sigurðsson, húsgagnasm.m., Reykjavík,
Guðmundur Halldórsson, húsasmíðam., Reykjavík,
Ásgeir G. Stefánsson, forstjóri Hafnarfirði.
118
Níunda Iðnþing Islendinga skorar á næsta Alþingi, að
hækka styrkinn til Landssambands iðnaðarmanna í kr.
150.000.00 á fjárlögum árið 1948.
Svolátandi fjárhagsáætlun fyrir árið 1948 var lögð
fram af fjárhagsnefnd, og samþykkt.
TEKJUR:
1. Styrkur úr ríkissjóði ............. kr. 100.000.00
2. Skattar frá Sambandsfélögum......... —• 44.000.00
3. Aðrar tekjur ........................ — 6.000.00
kr. 150.000.00
GJÖLD:
1. Skrifstofukostnaður .................. kr. 87.000.00
2. Kostnaður fulltr. á Norr. iðnþingið . . — 6.000.00
3. Kostnaður vegna Iðnaðarritsins...... — 32.000.00
4. Til útgáfu handbóka og ófyrirséð .... — 25.000.00
kr. 150.000.00
Samþykkt var að skattur Sambandsfélaganna til Lands-
sambandsins yrði kr. 20.00 á hvern meðlim fyrir árið
1948.
Þjóðleikhúsbúnaöurinn.
Um það mál urðu allmiklar umræður. Svohljóðandi til-
laga frá Helga H. Eirikssyni var borin fram:
„Níunda Iðnþing íslendinga samþykkir gerðir Sam-
bandsstjórnar viðvíkjandi smiði húsbúnaðar í Þjóðleik-
húsið, og felur henni að fylgja því máli fast eftir á sama
grundvelli og hún hefur tekið það upp. Jafnframt vill
þingið víta afstöðu þjóðleikhúsnefndar í þessu máli, sem
algerlega óviðeigandi og beina árás á íslenzka iðnaðar-
menn“.
Að tilmælum Einars Gíslasonar, var viðhaft nafnakall
um tillögu þessa, og sögðu 38 fulltrúar já, þ. e. allir
þeir, er á fundi voru.
Innflutnings- og gjáldeyrisleyfi.
Frá fjármálanefnd var samþykkt svohljóðandi tillaga:
„Níunda Iðnþing Islendinga átelur harðlega þær gerð-
ir Viðskiptaráðs, sem tíðkast hafa á undanförnum árum,
að veita innflutnlngs- og gjaldeyrisleyfi fyrir fullunnum
iðnaðarvörum á sama tíma og það neitar, eða takmarkar
mjög, leyfi fyrir efnivörur til framleiðslu á sömu voru
innanlands. Þingið skorar á væntanlegt fjárhagsráð að
haga leyfisveitingum þannig framvegis að hlutur iðn-
aðarins í landinu verði ekki verri en annarra atvinnu-
vega, hvað snertir áhöld og efnivörur, og leýfisveiting-
um verði hagað þannig, að iðnaðarmenn sjálfir fái leyf-
in í sínar hendur.