Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1947, Blaðsíða 26
Iðnaðarritið 9. - 10. XX. 1947
Frá Sambandsfélögum
Frá IOnaÖarmannafélagi Noröfjaröar.
Aðalfundur var haldinn 9. febrúar 1947. Formaður gaf
yfirlit yfir störf á liðnu ári.
Fimm fundir og 8 stjórnarfundir höfðu verið haldnir.
Kauptaxti félgsins var samræmdur og er nú sama kaup
hjá öllum iðnaðarmönnum, sem tímakaup taka. Þá var
í fyrsta sinn sett vikukaup og ákvæði um slysadaga og
fleiri réttindi.
í félgið hafa gengið 6 menn á árinu, og eru félags-
menn 30, þar af 2 heiðursfélagar.. Einn maður hefir
gengið úr því, Sigurjón Jónsson, málari, sem fluttist til
Hafnarfjarðar.
Þann 29. okt. varð Eiríkur Elíasson, húsasmiðam. 70
ára. Stjórn félagsins heimsótti hann á afmælinu og af-
henti honum skjal sem heiðursfélaga.
Á fundi 24. nóv. minntist formaður á 10 ára afmæli
félagsins, sem var þann 1. nóv. 1946, og rakti stuttlega
sögu þess. Var afmælið haldið hátíðlegt 6. marz s. 1.
eins og sagt var frá í 5-6 hefti.
Vinna var yfirleitt mikil og vöntun á faglærðum mönn-
um eins og undanfarin ár.
Félagið hélt uppi iðnskóla eins og að undanfarna vet-
ur, í honum eru 14 iðnnemar.
Þessir menn voru kosnir í stjórn:
Valgeir Sigmundsson, endursk. form.
Jóhann Gunnarsson, ritari,
Helgi Jónsson, gjaldk. endursk.,
Meðst jórnendur:
Sigurður Friðbjörnsson, endursk. og
Jón S. Einarsson.
lönaöarmannafélag Austur-Húnvetninga á Blönduósi
hélt aðalfund sinn sunnudaginn 27. april s.l.
Félagið sá sér ekki fært, fjárhagsins vegna, að senda
mann á næsta iðnþing, en óskaði eindregið eftir þvi að
þingið leggi áherzlu á, að Innkaupasamband iðnaðar-
manna verði eflt sem mest.
Guðmundssyni, v'ar einróma samþykkt að senda honum
svohljóðandi simskeyti:
„Um leið og Sveinbjörn Jónsson, samkvæmt eigin ósk
víkur úr stjórn Landssambands iðnaðarmanna, vill ní-
unda Iðnþing Islendinga votta honum traust sitt og
þakkir fyrir langt starf og heillaríkt í þágu iðnaðarmanna
og iðnaðarsamtakanna.“
í varastjórn Landssambandsins voru þessir kjörnir:
Þorsteinn Sigurðsson, Þóroddur Hreinsson, Ársæll
Árnason, Júlíus Björnsson, Vigfús Sigurðsson.
Endurskoðendur reikninga:
Þorleifur Gunnarsson, Ásgeir G. Stefánsson.
Til vara:
Kristólína Kragh, Bror Westerlund.
120
Atvinna hefur verið mikil siðasta ár og afkoma því
góð hjá iðnaðarmönnum, og lítur einnig út fyrir að
verði eins á þessu ári.
Á Blönduósi vinnur talsvert af gerfismiðum og sér
félagið enga leið til þess að ráða bót á því, þegar ekki
er hægt að útvega fagmenn í staðinn.
Sú breyting varð á stjórn félagsins að Guðmann Hjálm-
arsson var kosinn formaður, Stefán Þorkelsson ritari
og Björn Einarsson endurkosinn gjaldkeri.
Iönaöarmannafélag Akraness hélt aðalfund sinn í febr.
s.l. Voru þar lagðir fram endurskoðaðir reikningar fé-
lagsins, kosin stjórn og önnur venjuleg aðalfundarstörf
framkvæmd.
Félagið hélt sex fundi á árinu, er voru í meðallagi
sóttir, virðist öll félagsstarfsemi vera nokkuð á hakan-
um núna vegna annríkis iðnaðarmanna, en ekki er þó
ástæða til svartsýni í þessu sambandi, og mun félags-
starfsemin vafalaust færast í aukana, þegar atvinna
manna rénar.
Iðnaðarmannafélagið rekur hér Iðnskóla eins og að
undanförnu með góðum árangri, skólastjóri er Magnús
Jónsson.
Iðnaðarmenn mynduðu á árinu sem leið hlutafélag um
byggingavöruverzlun, en er rekin í smáum stíl vegna
vöruskorts. Mjög takmörkuð innflutningsleyfi hafa feng-
ist og þess vegna orðið að búa við tilfinnanlega vöntun
á byggingarefni. Vonandi tekur Innkaupasamband iðn-
aðarmanna bráðlega til starfa og bætir úr þessu öllu.
Kosningu í stjórn hlutu Jóhann B. Guðnason, formað-
ur, endurkosinn, Sigurður Símonarson ritari, endurkos-
inn, Halldór Þorsteinsson gjaldkeri, endurkosinn og þeir
Lárus Árnason málaram. og Brynjólfur Kjartansson
húsasmíðam. meðstjórnendur.
Frá IÖnaÖarmannafélagi Patreksfjaröar.
Á aðalfundi félagsins, sem haldinn var 4. júní þ. á.
fór fram stjórnarkosning. Fyrrverandi stjórn baðst öll
undantekningarlaust og eindregið undan endurkosningu.
Félaginu hafði á síðasta ári borist nýir starfskraftar,
þar sem sex nýir félagar gengu inn. 3 gengu úr félaginu.
Starfsemi félagsins hefur verið nokkuð dauf undanfaiið.
Fundurinn samþykkti að senda fulltrúa á Iðnþingið í
Vestmannaeyjum og tókst séra Einar Sturluson förina á
hendur, ,en varð að hætta við hana á síðustu stundu.
Þessir menn voru svo kosnir í stjórn félagsins:
Formaður: Steingrimur Sigfússon, málari.
Ritari: Guðjón Jóhannesson, trésmiður,
Gjaldkeri: Páll Jóhannesson trésmiður.
Ritstjórar: Sveinbjörn Jónsson, pósth. 491, sími 2986,
og Páll S. Pálsson, Laugaveg 10 (skrifstofa), sími
5730. Prentstaður: Herbertsprent, Bankastræti 3,
sími 3635. Afgreiðslu ritsins annast skrifstofa Lands-
sambands iðnaðarmanna, Kirkjuhvoli, sími 5363.
Afgreiðsla auglýsinga er hjá Félagi isl. iðnrekenda,
Laugaveg 10, sími 5730.