Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1956, Blaðsíða 3

Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1956, Blaðsíða 3
TlMARIT IÐNAÐARMANNA 3 í byrj-un apríl n.k. eru væntan- legir til landsins á veguni Iðnaðar- niálastofnunar fslands í samráði við Félag islenzkra iðnrekenda, Lands- samband iðnaðarmanna, Samband islenzkra samvinnufélaga og Vinnu- veitendasamband íslands tveir ráðu- nautar í skipulagningu og fram- leiðslueftiriiti i iðnfyrirtækjum. Ráðunautarnir eru Mr. George M. Arisman iðnaðarverkfræðingur og próf. dr. H. Herton Sheldon, en þeir hafa starfað hjá Framleiðniráði Evrópu i rúmlega eitt og hálft ár. Á þeim tima hafa þeir fcrðazt til níu Evrópurikja, þ .e. ítaliu, Frakk- lands, Danmerkur, Hollands, Noregs, Þýzkalands, Spánar, Belgiu og Tyrklands. í liverju þessara landa liafa þeir dvalizt frá tveim og upp í sjö vikur og flutt fyrirlestra fyrir um (iOOO manns samtals, aðallega forráðamenn og stjórnendur iðn- fyrirtækja. Einnig hafa þeir heim- sótt og rannsakað um 75 verksmiðj- ur og veitt um eitt hundrað fyrir- tækjum hagnýtar leiðbeiningar. Hér á landi munu ráðunautarnir dveljast frá 9.—28. apríl. Er fyrir- lnigað að fyrstu vikuna heimsæki þeir fyrirtæki, sem þess kunna að óska, eftir því, sem við verður komið, og veiti leiðbeiningar, sem miði að liagkvæmari rekstri. Munu ráðunautarnir lieimsækja Ak- ureyri síðari hluta vikunnar. Hinn 10. apríl hefst svo námskeið i Reykjavík, sem stendur yfir í tvær vikur, og er það ællað stjórnendum hvers konar framleiðslufyrirtækja, sem hafa áliuga á að kynnast nýjum viðhorfum í gerð áætlana, skijni- lagningu framleiðslu og eftirliti í iðnfyrirtækjum. Er ráðgert, að tveir fyrirlestrar verði fluttir daglega, þar af annar árdegis. Verða þeir túlkaðir jafnóðum, en á eftir er gert ráð fyrir umræðum og verður túlkur til staðar eftir því sem þarf. Er nauðsynlegt, að væntanlegir þátttakendur ætli sér nægan tíma til að sækja fyrirlestr- ana þær tvær vikur, sem þeir standa yfir (1G.—27. april). Mr. George M. Arisman, sem hefur starfað sem ráðgefandi iðnaðarverk- fræðingur í m. a. málm-, plast-, hús- gagna-, gler- og matvælaiðnaði, mun Ojj rehstri fyrirtskja flytja fyrirlestra um áætlanir og skipulagningu á innkaupum, fram- leiðslu, sölu og fjármálum, og hvern- ig þessir meginþættir rekstursins verða bezt samhæfðir. Próf. dr. H. Herton Sheldon er verkfræðingur að menntun með doktorsgráðu í eðlis- og stærðfræði. Hann hefur starfað sem prófessor, ráðgefandi verkfræðingur fyrir iðn- fyrirtæki og einnig sem fram- kvæmdastjóri. Dr. Sheldon mun flytja fyrirlestra um skipulagningu framleiðslu iðnfyrirtækja og eftirlit með framleiðslurásinni. Af hinum ýmsu þáttum þessarar starfsemi, sem fjallað verður um, má nefna: Skipulagningu verkefna með tilliti til vinnuafls og véla, úthlutun og dreifingu efnis til verkefna, söfnun Iðnráð Reykjavíkur Iðnráð Reykjavíkur hélt aðalfund sunnud. 29. janúar s.l. í Baðstofu Iðnaðarmanna. Formaður og ritari fluttu skýrslu stjórnarinnar um störfin síðasta kjörtímabil, sem reyndust all umfangsmikil. Stjórnin hélt 51 bókaðan fund á timabilinu og skrifaði 220 bréf til ýmissa aðila. Störf iðnráðsstjórnar beindust aðal- lega að réttinda- og kæruinálúm varðandi iðnað. Stjórnin var öll endurkosin, en hana skipa eftir- taldir menn: Guðmundur Halldórsson húsa- smiður, formaður, Gísli Jónsson bif- reiðasmiður, varaformaður, Valdi- mar Leonhardsson, bifvélavirki, ritari, Gísli Ólafsson bakari, gjald- keri og Þorsteinn B. Jónsson málari, vararitari. í varastjórn voru kosnir: Þórólfur Beck liúsgagnasmiður, Óskar Hallgrímsson rafvirki, Guð- mundur Halldórsson prcntari og Þorsteinn Daníelsson skipasmiður. Endurskoðendur voru kosnir: Guðmundur B. Hersir og Þorsteinn Daníelsson skipasmiður, iil vara Hallvarður Guðlaugsson. 1. febrúar 195(5. F. h. Iðnráðs Reykjavíkur, Valdimar Leonliards. upplýsinga til notkunar við samning kostnaðaráætlana, útreikninga o. s. frv. Svo sem áður er getið, er nám- skeiðið ætlað stjórnendum fram- leiðslufyrirtækja og aðstoðarmönn- um þeirra og eru þeir, sem áhuga hafa fyrir að taka þátt í námskeið- inu og einnig vilja fá tækifæri til að ræða við ráðunautana meðan þeir dveljast hér á landi, beðnir um að snúa sér til skrifstofa neðangreindra samtaka, ef þeir eru aðilar að þeim, eða Iðnaðarmálastofnunar íslands fyrir 5. apríl n.k. Nánari upplýsingar um væntanlegt námskeið og annað, er viðkemur heimsókn ráðunautanna, verða veitt- ar hjá Félagi ísl. iðnrekenda, Lands- sambandi iðnaðarmanna, Sambandi isl. samvinnufélaga, Vinnuveitenda- sambandi íslands og Iðnaðarmála- stofnun íslands. (Frá Iðnaðarmálastofnun Islands). Bökunarfélag ísfirðinga 50 ára Um áramótin voru liðin 50 ár síð- an Bökunarfélag ísfirðinga hóf starfsemi sina. Hvatamenn að stofnun þess voru ásamt mörgum öðrum: Magnús Torfason, bæjarfógeti á ísafirði, Pétur M. Bjarnason, kaupmaður og Helgi Sveinsson, útibússtjóri ís- landsbanka. Fyrsti bakari félagsins var Sleinn Ólafsson, síðar bakari á Þingeyri. Arið 1908 tók Guðmundur Guð- mundsson frá Gufudal við forstöðu félagsins og hafði á hendi eftir það, þar til sonur hans Sigurður tók við af honum. Undanfarin 80 ár hefir félagið liaft samvinnu og samstarf við Kaup- félag ísfirðinga. Fastir starfsmenn félagsins eru nú 6. Stjórn og starfsmenn félagsins minntust þessara timamóta með samkomu i veitingaliúsinu Norður- póllinn. Viðskiptavelta félagsins 1954, nam um 000 þús. kr. og það ár voru framleidd 102 tonn af brauðvörum.

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.