Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1962, Page 18

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1962, Page 18
BJORN ROGNVALDSSON byggingamexstari Hinn 17. sept. 1962 andaðist Bjötn Rögnvaldsson, byggingameistari. Hann var fæddur að Gröf á Höfða- strönd 21. des. 1896. 21 árs gamall hóf hann nám í húsa- smíði, fyrst hér í Reykjavík og síðan í Kaupmanna- höfn. Strax að loknu námi var Björn kominn í röð fremstu og áhrifamestu byggingameistara hér í Reykja- vík, enda hlóðust á hann störf í félagsmálum iðnaðar- manna. Hann var formaður Trésmiðafélags Reykja- víkur um skeið og prófdómari við sveinspróf húsa- smiða í 30 ár, svo að eitthvað sé nefnt. Árið 1936 hóf hann starf sitt hjá Húsameistara ríkis- ins sem byggingameistari og eftirlitsmaður mcð opin- berum byggingum, er hann gegndi til dauðadags. Björn var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Ingibjörg Sigríður Steingrímsdóttir, er hann missti árið 1934, en síðari kona Sigríður Hallgrímsdóttir og lifir hún mann sinn. ARNGRIMUR F R. BJARNASON prentari Arngrímur Fr. Bjarnason iézt 17. sept. 76 ára að aldri. Hann var fæddur 2. okt. 1886. Arngrímur var prentari að iðn, er hann lærði á ár- unum 1903 til 1906 og stundaði iðn sína síðan til ársins 1918 og af og til árin 1930 til 1940. Jafnframt prentara- störfum sínum tók hann þátt í blaðamcnnsku og blaða- útgáfu, ásamt flciri ritstörfum og rekstri prentsmiðju. Arngrímur var mikill áhugamaður um öll félagsmál og þá ekki sízt um félagsmál iðnaðarmanna, enda hlóðust á hann störf varðandi félagsmál þeirra. 1 stjórn Iðnaðarmannafélags Isafjarðar var hann um fjölda ára SNÆBJÖRN G. JÓNSSO húsgagnasmíðameistari Snæbjörn G. Jónsson var fæddur í Sauðeyjum á Breiðafirði 15. júlí 1893, cn lézt 17. sept. 1962. Foreldrar hans voru Jón Ormsson, bóndi, og kona hans Ingibjörg Jónsdóttir. Til Reykjavíkur fluttist Snæbjörn 1918 og stundaði þar húsgagnasmíði til æviloka. Hann tók mikinn þátt í félagsmálum iðnaðarmanna, svo sem Iðnaðarmanna- félaginu í Reykjavík, Húsgagnameistarafélagi Reykja- víkur, en hann var varaformaður þess og fulltrúi á mörgum Iðnþingum. og um skeið formaður Iðnráðs ísafjarðar og þá jafn- framt fulltrúi þess á nokkrum Iðnþingum íslendinga. Arngrímur rak verzlun meiri hluta ævinnar og komu þar vel fram hæfileikar hins sívinnandi athafnamanns, sem lét sér ekkert málcfni óviðkomandi utan sveitar sem innan. Arngrímur kvæntist 21 árs gamall fyrri konu sinni Guðríði Jónsdóttur, en missti hana árið 1922. Síðari konu sinni, Ástu Eggertsdóttur Fjeldsted, kvæntist hann árið 1923. N Snæbjörn var hagyrtur vel og málsnjall. Eitt af síð- ustu verkum hans var að smíða forkunnarfagran pré- dikunarstól, sem hann færði Grafarneskirkju að gjöf. Lýsir það vel höfðingsskap hans og átthagatryggð. Árið 1934 gekk Snæbjörn að eiga eftirlifandi konu sína, Önnu Friðriksdóttur. Varð þeim tveggja sona auðið: Snæbjarnar Þórs og Stefáns Jóns, en auk þess tóku þau í fóstur Þorvald Valsson. 146 TÍMARIT IÐNAÐARMANNA

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.